Næsta sunnudag verður kvöldmessa kl. 20:00 í Fella- og Hólakirkju.
Lögreglukórinn og Rokkkór Íslands syngja lög eftir þá Magnús Eiríksson, Magnús Kjartansson og Magnús Þór Sigmundsson og má því segja að um ,,Magga messu“ sé að ræða. Stjórnandi er Matthías V. Baldursson og prestur er sr. Árni Þór Þórsson.
Fyrr um daginn er komið að hinni árlegu Dýrfirðingamessu kl. 14:00. Félagar í kirkjukór Dýrfirðinga leiða safnaðarsönginn og organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Sr. Árni Þór Þórsson þjónar fyrir altari og prédikar. Eftir messuna er kaffisala í safnaðarheimilinu. Verðið á kaffi og glæsilegu meðlæti er kr. 3.500 fyrir fullorðna.
Verið hjartanlega velkomin næsta sunnudag. Annan sunnudaginn í röð hafa kirkjugestir um tvær messur að velja í Fella- og Hólakirkju.
