Skírdagur
Ferming í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00. Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari. Sönghópurinn Melódía leiðir safnaðarsönginn og flytur tónlistaratriði undir stjórn Matta tónlistarstjóra.
Kvöldmessa í Breiðholtskirkju kl. 20:00. Áhrifarík kvöldstund með fallegri tónlist. Sr. Árni Þór þjónar fyrir altari og Íris Rós og Jóhanna Elísa spila og syngja.
Föstudagurinn langi
Kyrrðarstund kl. 20:00. Friðrik Karlsson, Matthías V. Baldursson og sönghópurinn Melódía leika slökunartónlist sem auðveldar öllum að róa hugann, minnast krossfestingar Jesú og finna sinn innri frið. Sr. Árni Þór leiðir stundina.
Páskadagur
Páskamessa kl. 09:00 í Fella- og Hólakirkju. Sr. Pétur og Steina djákni þjóna fyrir altari og sönghópurinn Melódía leiða sálmasönginn undir stjórn Matta tónlistarstjóra. Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu. Morgunverðarhlaðborð eftir stundina. Páskaeggjaleit í sunnudagaskólanum á sama tíma.