Dixiebandið Öndin spilar í fjörugri dixieland messu 12. apríl kl. 20:00 í Fella- og Hólakirkju.
Dixieland tónlist er elsta form djass tónlistar og á rætur sínar að rekja til New Orleans í byrjun 20. aldar. Hún einkennist af spilagleði, spuna og krafti.
Þetta verður því kröftug og fjörug messa sem enginn má láta fram hjá sér fara.

Öndina skipa þeir:
Finnur Pálmi Magnússon – trommur
Fjalar Sigurðarson – túba
Freyr Guðmundsson – trompet
Jón Ingvar Bragason – básúna
Matthías V. Baldursson – saxófónn, klarínett og píanó
Sævar Garðarsson – trompet
Finnur Pálmi Magnússon – trommur
Fjalar Sigurðarson – túba
Freyr Guðmundsson – trompet
Jón Ingvar Bragason – básúna
Matthías V. Baldursson – saxófónn, klarínett og píanó
Sævar Garðarsson – trompet
Með Öndinni syngur gospelsöngkonan Áslaug Helga Hálfdánardóttir og prestur verður sr. Árni Þór Þórsson.
Allir hjartanlega velkomnir