Sumardaginn fyrsta, 23. apríl verður sumarsunnudagaskóli í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00.
Eftir sunnudagaskólann verður boðið upp á lita- og kirkjuhlaup. Hlaupið verður í gegnum litasprengur um Elliðaárdalinn og endað í Árbæjarkirkju. Þar verður boðið upp á grillaðar pylsur og hoppukastala.
Þátttakendur hvattir til að koma í ljósum fatnaði sem þolir þvott.
