Hin árlega lögreglumessa verður að þessu sinni í Fella- og Hólakirkju föstudaginn 1. maí kl. 11:00.

Lögreglukórinn syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar og prestur er sr. Pétur Ragnhildarson.

Léttar veitingar í boði LL eftir messu og að sjálfsögðu eru allir hjartanlega velkomnir.