Næstu sunnudaga er komið að göngumessunum í Breiðholti sem eru orðnar áralöng sumarhefð.
Gengið er á milli kirknanna í Breiðholtinu og skipst á að vera með messu á hverjum stað fyrir sig. Göngurnar hefjast alltaf kl. 10:00 og messurnar kl. 11:00. Að sjálfsögðu er einnig hægt að mæta beint til messu og sleppa göngunni.
Ólöf Sigurðardóttir leiðsögumaður mun leiða göngurnar í sumar ásamt prestum safnaðanna.
7. júní er gengið frá Seljakirkju að Fella- og Hólakirkju.
14. júní er gengið frá Fella- og Hólakirkju að Breiðholtskirkju.
21. júní er gengið frá Breiðholtskirkju að Seljakirkju.
28. júní er gengið frá Seljakirkju að Fella- og Hólakirkju.
5. júlí er gengið frá Fella- og Hólakirkju að Seljakirkju.
