Fréttir

Guðsþjónusta 13.febrúar kl.11

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Þorvaldur Halldórsson leiðir almennan safnaðarsöng. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar D Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. Börnin fara í ratleik. Mikill söngur og skemmtileg dagskrá. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2011-02-08T10:27:28+00:008. febrúar 2011 | 10:27|

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 6.febrúar 2011

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Sr. Svavar Stefánsson flytur hugleiðingu. Þórey Dögg Jónsdóttir leiðir stundina. Listasmiðjan Litróf syngur undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í kirkjuna okkar.

By |2011-02-01T09:53:57+00:001. febrúar 2011 | 09:53|

Guðsþjónusta 30.janúar kl.11

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttir organista. Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni prédikar. Sunnudagskóli á sama tíma í umsjá Þóru Sigurðardóttur og Daríu Rudkova.,,Búum til nammi". Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

By |2011-01-25T10:28:22+00:0025. janúar 2011 | 10:28|

LIFANDI STEINAR

Í febrúar og mars verður boðið upp á námskeið í kirkjunni undir yfirskriftinni LIFANDI STEINAR. Námskeiðið er í höndum sr. Guðmundar Karls Ágústssonar og er haldið á fimmtudögum kl. 19:30 - 21:30. Námskeiðið hefst 3.febrúar og lýkur í lok mars, alls 7 skipti.  Innritun og upplýsingar: Sr Guðmundur Karl   8964853 Námskeiðið veitir - innsæi í eðli guðsþjónustunnar [...]

By |2017-02-02T13:02:15+00:0018. janúar 2011 | 12:35|

Kirkjustarf eldri borgara alla þriðjudaga

Kirkjustarf eldri borgara er alla þriðjudaga. Kyrrðarstund er klukkan 12, Guðný Einarsdóttir organisti leikur á orgel og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni flytur stutta hugvekju. Að kyrrðarstund lokinni er boðið upp á súpu og brauð á vægu verði í safnaðarheimili kirkjunnar. Kl.13 hefst skipulögð dagskrá, fyrirlestrar, tónlist, fræðsla eða létt erindi. Í kirkjustarfinu kemur fólk saman til að eiga gott [...]

By |2011-01-18T10:19:09+00:0018. janúar 2011 | 10:19|

Guðsþjónusta sunnudaginn 23.janúar

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Söngvarinn Þorvaldur Halldórsson leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur.Efni skólans er ,,Við gerumst sjónvarpsstjörnur". Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Jóhanna F Björnsdóttir er meðhjálpari og kirkjuvörður. Verið innilega velkomin.

By |2011-01-18T10:08:44+00:0018. janúar 2011 | 10:08|

Nýr pistill

Prestar og djákni kirkjunnar skrifa stundum á heimasíðunni. Hér má lesa nýjan pistil frá Ragnhildi: http://kirkjan.is/fellaogholakirkja/predikanir-og-pistlar/ragnhildur/pistill_6/

By |2011-01-17T14:43:47+00:0017. janúar 2011 | 14:43|

Messa sunnudaginn 16.janúar

Messa kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur Kantors kirkjunnar. Fermingarbörn lesa texta. Vænst er þáttöku fermingarbarna og foreldra þeirra. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóru Sigurðardóttur og Daríu Rudkova. Leikjastuð í sunnudagaskólanum. Mikið fjör og gaman. Kirkjuvörður og meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin [...]

By |2011-01-11T10:11:06+00:0011. janúar 2011 | 10:11|

Foreldramorgnar í Fella- og Hólakirkju

Foreldramorgnar hefjast fimmtudaginn 13.janúar kl.10. Allir foreldrar innilega velkomnir með börnin sín. Kaffi og meðlæti. Umsjón og ábyrgð á starfinu hafa Kristín Ingólfsdóttir og Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

By |2011-01-11T10:07:12+00:0011. janúar 2011 | 10:07|
Go to Top