Fréttir

Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag

Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag kl. 14. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur. Jón Hafsteinn Guðmundsson leikur á trompet. Verið velkomin!

By |2010-12-28T11:00:08+00:0028. desember 2010 | 11:00|

Aftansöngur á gamlársdag

Á gamlársdag er aftansöngur kl. 18. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn organistans, Guðnýjar Einarsdóttur. Mæðginin Hildur Björk Svavarsdóttir, Sóley Björk Einarsdóttir og Stefán Arnar Einarsson leika á þverflautu, trompet og blokkflautu. Verið velkomin!

By |2010-12-28T10:57:34+00:0028. desember 2010 | 10:57|

Helgihald um jólin

Fögnum jólunum saman með gleði og söng. Velkomin í Fella- og Hólakirkju. Helgihald verður sem hér segir: […]

By |2010-12-23T10:20:29+00:0023. desember 2010 | 10:20|

Jólasöngvar við kertaljós

Helgistund kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Sungin verða ljúf og falleg jólalög. Notaleg stund í kirkjunni. Félagar úr kór kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella -og Hólakirkju.

By |2010-12-14T09:51:01+00:0014. desember 2010 | 09:51|

Jólatréskemmtun fyrir yngri börnin klukkan 11 og guðsþjónusta fyrir þau eldri klukkan14.

Jólatréskemmtun kl.11. Skemmtunin hefst með helgistund í kirkjunni og síðan er dansað í kringum jólatréð. Hver veit nema gestir komi úr fjöllunum ? Guðsþjónusta kl.14. Prestar og djákni kirkjunnar þjóna. Jón Ómar Gunnarsson prédikar.Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Organisti Ólafur W.Finnson. Félagar úr kirkjustarfi eldri borgara tendra kerti á aðventukransinum.Kaffi og meðlæti. Verð öll [...]

By |2010-12-07T10:16:30+00:007. desember 2010 | 10:16|

Falleg tónlist gleður

  Listasmiðjan Litróf syngur íslensk jólalög sem koma öllum í jólaskap. Gestasöngvari á diskinum er trúbadorinn Svavar Knútur. Hægt er að kaupa geisladiskinn í Fella- og Hólakirkju á 2000 krónur. Góð jólagjöf sem gleður.

By |2017-02-02T13:02:15+00:0030. nóvember 2010 | 11:55|

Fjölskylduguðsþjónusta 5.desember

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Diljá Sigursveinsdóttir og Daría Rudkova leiða stundina. Lesin verður saga og sungnir jólasálmar. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2010-11-30T09:53:32+00:0030. nóvember 2010 | 09:53|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Fyrsta sunnudag í aðventu verður guðsþjónusta kl.11. Prestur er sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista.  Kvenfélagskonur úr kvenf. Fjallkonurnar tendra fyrsta ljós á aðventukransinum.Sunnudagskóli á sama tíma. Það verður eitthvað ,,Leyndó". Umsjón Þórey D.Jónsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Aðventukvöld kirkjunnar hefst kl.20. Sr. Svavar Stefánsson leiðir stundina. Kór [...]

By |2010-11-23T09:58:46+00:0023. nóvember 2010 | 09:58|

Guðsþjónusta sunnudaginn 21.nóvember

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Una Dóra Þorbjörnsdóttir söngskólanemi syngur einsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Þar verða málaðar piparkökur, sögð Biblíusaga og fleira skemmtilegt. Öll börn innilega velkomin. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið velkomin í Fella- [...]

By |2010-11-16T10:58:23+00:0016. nóvember 2010 | 10:58|

Breiðholtsdagar

  Í tilefni af Breiðholtsdögum mun Fella- og Hólakirkja bjóða upp á fjölbreytta dagskrá.  Þriðjudaginn 16.nóvember kl.12.  Kyrrðarstund í Fella- og Hólakirkju Í kyrrðarstund er gott að koma til að hvíla hugann, hlusta á fallega tónlist og íhuga Guðs orð. Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni leiðir stundina. Eftir kyrrðarstundina er boðið upp á súpu og brauð á vægu [...]

By |2010-11-13T11:33:58+00:0013. nóvember 2010 | 11:33|
Go to Top