Fréttir

Fjölskylduguðsþjónusta 3.október

Fjölskylduguðsþjónusta næsta sunnudag, 3.október kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Listasmiðjan Litróf leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur djákna. Undirleik annnast Guðný Einarsdóttir organisti. Þórey Dögg Jónsdóttir og Þóra Sigurðardóttir leiða stundina. Mikil og fjölbreytt dagskrá við allra hæfi. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2010-09-28T09:26:50+00:0028. september 2010 | 09:26|

Sunnudagur 19.september

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista.  Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar D.Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. ,,Kjánalegi dagurinn”. Mikill söngur og fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2010-09-15T09:35:24+00:0015. september 2010 | 09:35|

Myndlistarnámskeið

Myndlist og trú, túlkun, tjáning, sköpun er meðal annars það sem listakonan Steinunn Einarsdóttir mun fjalla um á  myndlistarnámskeiði í olíumálun í Fella- og Hólakirkju dagana 22.-26.september […]

By |2010-09-08T12:22:07+00:008. september 2010 | 12:22|

Sunnudagur 12.september

Guðsþjónusta verður næsta sunnudag kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar ,, Ræktum grænmeti” Umsjón Þórey Dögg Jónsdóttir og Diljá Sigursveinsdóttir. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2010-09-08T12:08:40+00:008. september 2010 | 12:08|

Kórfólk óskast!

Kór Fella- og Hólakirkju auglýsir eftir söngfólki í allar raddir! Spennandi verkefni framundan! Raddpróf fyrir nýja félaga verða haldin mánudaginn 6. september kl. 19 - 20 í kirkjunni. Allar nánari upplýsingar veitir stjórnandi kórsins, Guðný Einarsdóttir í síma 698 9307.

By |2010-09-03T09:23:00+00:003. september 2010 | 09:23|

Krílasálmar – ný námskeið hefjast 13. september

Mánudaginn 13. september munu Krílasálmar - tónlistarnámskeið fyrir börn á fyrsta ári og foreldra þeirra, hefja göngu sína að nýju í Fella- og Hólakirkju. Kennt verður á mánudagsmorgnum frá 10:30 - 11:30 í sex skipti og kostar námskeiðið 3.000 kr. Kennarar eru þær Guðný Einarsdóttir organisti og Diljá Sigursveinsdóttir tónlistarkennari. Á námskeiðinu er lögð áhersla [...]

By |2010-09-03T09:20:28+00:003. september 2010 | 09:20|

Fjölskylduguðsþjónusta 5.september

Fyrsta fjölskylduguðsþjónusta vetrarins verður næsta sunnudag kl.11. Prestar sr. Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Svavar Stefánsson. Starfsfólk sunnudagaskólans verður kynnt. Hugleiðingu annast Þórey Dögg Jónsdóttir. Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni og Guðný Einarsdóttir organisti leiða almennan söng og annast undirleik. Mikill söngur og fjör.  Fjölskyldur eru hvattar til að mæta. Boðið verður upp á kaffi og djús [...]

By |2010-08-31T12:56:18+00:0031. ágúst 2010 | 12:56|

Kvöldguðsþjónusta 29.ágúst

Sunnudaginn 29. ágúst verður kvöldguðsþjónusta kl 20. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Þorvaldur Halldórsson tónlistarmaður syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin Guðspjall dagsins er úr Lúkasarguðspjalli 10:23-37 […]

By |2010-08-25T11:00:03+00:0025. ágúst 2010 | 11:00|

Kvöldguðsþjónusta 22. ágúst

Kvöldguðsþjónusta verður í kirkjunni sunnudagskvöldið 22. ágúst kl. 20. Prestur er sr. Svavar Stefánsson en organisti að þessu sinni er Magnús Ragnarsson. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. Guðspjall dagsins er um það er Jesús gaf daufum og mállausum manni heyrn og mál. Verður lagt út frá því og fjallað um að við berum ábyrgð hvar [...]

By |2010-08-19T11:31:51+00:0019. ágúst 2010 | 11:31|
Go to Top