Fréttir

Fermingarfjör kirknanna í Breiðholti

Laugardaginn 16. febrúar munu kirkjurnar í Breiðholtinu sameinast um skemmtilega nýjung í fermingarstarfinu, en þá munu fermingarbörn úr öllum kirkjum í Breiðholtinu taka þátt í fermingafjöri í Fella-og Hólakirkju frá kl. 10-14. Það verður mikið stuð og gaman og sjá Pétur Ragnhildarson, Arnar Ragnarsson og Alla Rún Rúnarsdóttir um dagskrána.

By |2019-02-15T15:45:16+00:0015. febrúar 2019 | 15:45|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli 17. febrúar

Sunnudaginn 17. febrúar kl. 11 verður guðsþjónusta og sunnudagaskóli. Sr. Guðmundur Karl þjónar og kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Hulda Jónsdóttir og Guðrún Jónsdóttir syngja einsöng. Sunnudagaskóli í safnaðarheimili í umsjá Mörtu og Ásgeirs.

By |2019-02-15T12:27:17+00:0015. febrúar 2019 | 12:20|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudaginn 10. febrúar kl. 11

Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Einsöngur Inga Backman og Kristín R. Sigurðardóttir. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Sunnudagaskóli á sama tíma. Meðhjálpari, Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Kaffi og djús eftir stundina. Verið velkomin

By |2019-02-05T10:42:00+00:005. febrúar 2019 | 10:35|

Eldriborgarastarf þriðjudaginn 5. febrúar

Kyrrðarstund kl. 12:00. Súpa og brauð á vægu verði eftir stundina. Örtónleikar kl. 13:00 með Kristínu R. Sigurðardóttur og Arnhildi Valgarðsdóttur organista. Þekktar og óþekktar Ave Maríur Tónleikarnir eru 30 mín. Enginn aðgangseyrir Verið velkomin

By |2019-02-03T09:28:35+00:003. febrúar 2019 | 09:28|

Kyrrðarstund og stuttir hádegistónleikar þriðjudaginn 22. janúar

Kyrrðarstund kl. 12 síðan er boðið upp á léttan hádegisverð. Eldriborgarastarf kl. 13:00. Boðið upp á stutta hádegistónleikar kl. 13:00. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Særún Harðardóttir söngkona flytur ljúfa þjóðlagadagskrá við undirleik Arnhildar organista. Allir eru velkomnir í gott og nærandi samfélag. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Starfsfólk Fella og Hólakirkju. 

By |2019-01-20T15:14:41+00:0020. janúar 2019 | 15:14|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 sunnudaginn 20. janúar

Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Bára Dís Böðvarsdóttir spilar á píanó. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Mörtu og Ásgeirs. Kaffi og djús eftir stundina. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið velkomin.

By |2019-01-15T10:08:12+00:0015. janúar 2019 | 10:07|
Go to Top