Fréttir

Karlakaffi föstudaginn 31.mars kl.10-11.30

Föstudaginn 31.mars kl. 10-11.30   Má bjóða ykkur í kaffi og spjall! Hressandi kaffisopi og kruðerí, spjall og samvera. Þessi stund er kjörin fyrir þá sem eru hættir að vinna og hafa gaman af hitta aðra karla og spjalla saman. Gestur okkar að þessu sinni er sr. Vigfús Þór Árnason. Vigfús er alltaf hress og [...]

By |2017-03-30T10:16:13+00:0030. mars 2017 | 10:14|

Fermingamessa sunnudaginn 2. apríl kl. 11:00

Fermingamessa kl. 11:00. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar ásamt Pétri Ragnhildarsyni guðfræðinema. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Sunnudagaskóli á sama tíma. Verið velkomin 

By |2017-03-28T10:14:26+00:0028. mars 2017 | 10:14|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 28. mars

Kyrrðarstund kl. 12. Boðið upp á súpu og brauð eftir stundina á vægu verði. Gestur okkar í dag er sr. Petrína Mjöll sem gaf út bókina Salt og Hunang. Spilum, prjónum og spjöllum saman. Verið velkomin  

By |2017-03-27T12:21:23+00:0027. mars 2017 | 12:20|

Séra Jón Ómar Gunnarsson valinn í embætti prests í Fella- og Hólaprestakalli

Biskup Íslands hefur ákveðið að skipa séra Jón Ómar Gunnarsson í embætti prests í Fella- og Hólaprestakalli Reykjavíkurprófastsdæmis eystra. Tíu umsækjendur sóttu um embættið sem veitist frá 1. apríl nk. Umsóknarfrestur rann út 1. mars sl. Biskup skipar í embættið í samræmi við niðurstöðu kjörnefndar prestakallsins. Jón Ómar lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 2008 [...]

By |2017-03-27T13:03:11+00:0023. mars 2017 | 14:23|

Djúpslökun og fyrirbæn á morgun 30.maí, þriðjudag kl. 17.30-18.30

Þessir tímar henta öllum og er algjörlega áreynslulausar. Þorgerður leiðir okkur í  slökun og  hugleiðslu sem þarfnast engrar sérþekkingar eða reynslu og Kristín djákni leiðir okkur inn í fyrirbæn. Þetta eru dásamlegar stundir sem allir ættu að geta nýtt sér til að losa um þá streitu og spennu sem fylgir hraða og annríki nútímans. Það [...]

By |2017-06-01T11:49:46+00:0021. mars 2017 | 10:38|

Þriðjudagar eru annasamir í kirkjunni

Þriðjudagar er annasamir dagar í kirkjunni. Við byrjum á starfsmannafundi kl. 8.30, síðan er kyrrðarstund kl. 12 og eldri borgarastarfið kl. 13. Í dag verður sett upp leiksýning í kirkjunni. Gísli á Uppsölum verður settur upp af arnfirsku leikhússtrákunum Elvari Loga og Þresti Leó kl. 14:00. aðgangseyrir 1000 kr. Það verður spennandi. Seinniparturinn fer svo [...]

By |2017-03-21T10:36:42+00:0021. mars 2017 | 10:36|

Leiksýning í Fella- og Hólakirkju GÍSLI Á UPPSÖLUM þriðjudaginn 21. mars kl. 14:00

Leiksýning í Fella- og Hólakirkju   GÍSLI Á UPPSÖLUM   þriðjudaginn 21. mars kl. 14:00 aðgangseyrir 1000. kr Gísli á Uppsölum er einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins. Hér er á ferðinni áhrifamikil sýning sem hefur hrifið áhorfendur líkt og saga söguhetjunnar. Höfundar leikverksins um Gísla á Uppsölum eru arnfirsku leikhússtrákarnir Elfar Logi [...]

By |2017-03-16T11:56:22+00:0016. mars 2017 | 11:56|

Guðsþjónusta sunnudaginn 19.mars kl. 11:00

Guðsþjónusta sunnudaginn 19.mars kl.11:00. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Félagar úr stúlknakór Reykjavíkur syngja undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Péturs og Ástu. Kaffisopi eftir stundina Verið velkomin

By |2017-03-15T11:15:49+00:0015. mars 2017 | 11:15|
Go to Top