Síðasta samvera eldri borgarastarfsins fyrir sumarfrí þriðjudaginn 26.maí
Síðasta samvera eldlri borgarastarfsins fyrir sumarfrí. Kyrrðarstund kl. 12. og hefðbundið dagskrá. Skoðum myndir frá starfinu í vetur og skemmtum okkur saman. Verið velkomin
Síðasta samvera eldlri borgarastarfsins fyrir sumarfrí. Kyrrðarstund kl. 12. og hefðbundið dagskrá. Skoðum myndir frá starfinu í vetur og skemmtum okkur saman. Verið velkomin
Hátíðarguðsþjónusta á Hvítasunnudag kl. 11. Prestur Svavar Stefánsson þjónar og predikar. Kór kirkjunar leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Guðný Einarsdóttir. Leikmenn lesa ritningatexta. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Heitt á könnunni eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Árleg vorferð okkar verður farin þann 19. maí og förum við að þessu sinni austur fyrir fjall upp Skeið og það sem leið liggur í Þjórsárdal. Við skoðum sýninguna Þjórsárstofu í Árnesi, sögufræga timburkirkju á Stóra–Núpi og margt fleira sem þessi fallega og sögufræga sveit hefur upp á að bjóða. Við ökum Landssveit, komum við [...]
Guðsþjónusta sunnudaginn 17. maí kl. 11. Sr.Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyrir altari. Gry Ek Gunnarsson formaður Fellasóknar flytur hugvekju. Kór Fella- og Hólakirkju syngur. Birta Teresa Hafsteinsdóttir spilar á hörpu. Organisti Guðný Einarsdóttir. Kaffisopi eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin
Á morgun þriðjudaginn 12. maí er hefðbundið starf, kyrrðarstund kl. 12 síðan súpa og brauð. Við fáum golfkennara í heimsókn sem kennir okkur allan galdurinn við að pútta. Eigum góðan og skemmtilegan dag saman. Minni á skráningu í vorferðinna þann 19. maí Verið velkomin.
Foreldramorgun alla fimmtudaga frá 10 - 12. Upplagt að fá sér göngutúr í morgunsólinni Hjartanlega velkomin
Guðsþjónusta sunnudaginn 10 maí kl. 11. Sr.Guðmundur Karl Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari Kór Fella- og Hólakirkju syngur. Organisti Guðný Einarsdóttir. Kaffisopi eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin
Kyrrðarstund kl. 12 síðan hefðbundin dagskrá. Gestur okkar í dag er sr. Svavar Stefánsson. Spilum, prjónum og eigum góða samverustund. Kaffi og kruðerí að hætti Jóhönnu og Kristínar. Verið hjartanlega velkomin.
Alla fimmtudag frá kl. 10 - 12 er foreldramorgnar í kirkjunni. Upplagt að fá sér göngutúr í vorblíðunni. Kaffi og kruðerí Allir velkomnir og hlökkum til að sjá ykkur.
Þann 30. apríl kl. 20 verður Karlakór Selfoss með tónleika í kirkjunni á 50. starfsári sínu. Stjórnandi er Loftur Erlingsson en undirleik á píanó verður í höndum Jóns Bjarnasonar. Þann 2. maí kl.15 verður Kvennakór Hafnarfjarðar með 20 ára afmælistónleika í Fella- og Hólakirkju. Margrét Eir og Páll Rósinkranz syngja með kórnum. Stjórnandi er Erna [...]