Fréttir

Guðsþjónusta sunnudaginn 22. febrúar Konudagur

Guðsþjónusta kl. 11 sunnudaginn 22. febrúar. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur dægulög undir stjórn Eyþórs Wechner Franzsons. Í tilefni konudagsins lesa konur ritningalestra og bænir og Sigurborg Sveinbjörnsdóttir fyrrverandi Leikskólastjóri flytur hugvekju. Eftir guðsþjónustu bjóða karlar upp á vöfflukaffi. Á sama tíma er sunnudagsskólinn í umsjá Péturs og Hreins. Allir hjartanlega [...]

By |2016-03-21T21:08:10+00:0017. febrúar 2015 | 09:51|

Félagsstarf aldraðra þriðjudaginn 17. febrúar

Félagsstarf aldraðra 17. febrúar. Kyrrðarstund kl. 12. Saltkjöt og baunir túkall! Höfum gaman saman. Óvæntir skemmtikraftar. Hefðbundin dagskrá að öðru leyti.Spil, spjall og handavinna. Framhaldsagan á sínum stað.  Allir hjartanlega velkomnir.

By |2016-03-21T21:08:10+00:0015. febrúar 2015 | 19:54|

Heimsókn frá heilsugæslunni á foreldramorgna fimmtudaginn 12. febrúar kl. 10 – 12

Fimmtudaginn 12. febrúar eru foreldramorgnar í kirkjunni frá kl. 10 - 12. Að þessu sinni fáum við gesti frá heilsugæslunni. Góð samvera í hlýlegu umhverfi kirkjunnar. Jóhanna og Kristín taka vel á móti ykkur. Allir foreldrar eru velkomnir og börnin eru frá því að vera örfárra vikna upp að leikskóla aldri.  Ekki láta hugsunina um [...]

By |2016-03-21T21:08:10+00:0010. febrúar 2015 | 16:42|

Guðsþjónusta sunnudaginn 15.febrúar kl. 11

Sunnudaginn 15. febrúar er guðsþjónusta kl. 11. Sr. Svavar Stefánsson predikar og þjónar fyrir altari. Sönghópurinn Boudoir syngur undir stjórn Julian Hewlett, organista. Á sama tíma er sunnudagsskólinn í umsjón Péturs og Hreins. Skemmtilegt og fræðandi barnastarf. Kaffisopi eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin.

By |2016-03-21T21:08:10+00:0010. febrúar 2015 | 10:22|

Þriðjudaginn 10. febrúar. Félagsstarf Aldraðra

Félagsstarf aldraðra hefst kl. 12 með kyrrðarstund. Að þessu sinni fáum við góða gesti frá Leikskólanum Hraunborg. Í tilefni heimsdags barna ætla leikskólabörnin að syngja fyrir okkur.  Léttur hádegisverður, spil, handavinna og góð samvera. Hlökkum til að sjá ykkur. Allir velkomnir.

By |2016-03-21T21:08:10+00:009. febrúar 2015 | 12:49|

Guðsþjónusta sunnudaginn 8.febrúar kl. 11

Guðsþjónusta kl.11. Prestur Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti Eyþór Franzson Wechner. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Í tilefni af Biblíudeginum og 200 ára afmæli Hins íslenska Biblíufélags verður Biblían í fókus með einum eða öðrum hætti. Sunnudagaskólinn á sama tími í umsjá Péturs og Hreins. Kaffisopi eftir guðsþjónustu. Verið hjartanlega velkominn.

By |2016-03-21T21:08:10+00:003. febrúar 2015 | 09:32|

Félagsstarf Aldraðra alla þriðjudaga frá 12-16

Þriðjudaginn 3. Febrúar verður Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra  gestur dagsins. Sigurjón er þekktur saxafón leikari og ætlar hann að leika fyrir okkur jazz og skemmta. Hefðbundin dagskrá. Kyrrðarstund kl. 12. Súpa, prjónum og spjöllum saman. Framhaldsagan lesin og fyrirbænastund.

By |2016-03-21T21:08:10+00:0030. janúar 2015 | 11:16|

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 1. febrúar kl. 11

Fjölskylduguðsþjónusta  sunnudaginn 1. febrúar kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og leiðir guðsþjónustuna. Umsjón með stundinni hafa Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson  Litrófið  syngur undir stjórn Sólveigar Önnu Aradóttur og Örn Ýmis Arasonar. Boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Kaffisopi eftir guðþjónustuna. Verið hjartanlega velkomin til kirkju nú sem endranær.  

By |2016-03-21T21:08:10+00:0027. janúar 2015 | 09:12|
Go to Top