0 gestir
Fjöldi í sæti í kirkjunni
0 gestir
Fjöldi í sæti í kirkjunni með stækkun í safnaðarsal
0 gestir
Fjöldi í sæti í safnaðarheimili

Safnaðarheimili

Safnaðarheimili Fella- og Hólakirkju er gjarnan leigt út fyrir ýmsa viðburði s.s. erfidrykkjur, brúðkaup, fermingarveislur o.fl. Safnaðarheimilið tekur 150 manns í sæti. Þegar safnaðarheimilið er leigt þarf einnig að fá 1-2 starfsmenn frá kirkjunni á staðinn og er greitt sérstaklega fyrir þá. Innifalið í leigu á sal eru dúkar, notkun á skjávarpa og kaffi. Kirkjuverðir sjá um leigu á salnum, best er að hringja í síma 5573280 milli kl. 9 – 15 mánudaga til fimmtudaga, og 9-14 á föstudögum.

Reglur

  1. Reykingar eru stranglega bannaðar.img_6934
  2. Neysla áfengis er bönnuð, nema við brúðkaupsveislur, þá er leyft að skála í freyðivíni.
  3. Ef tjón verða á munum kirkjunnar, þarf leigutaki að greiða fyrir það tjón.
  4. Greiða þarf sérstaklega fyrir laun kirkjuvarða.
  5. Gæta skal góðrar umgengni í hvívetna.
  6. Ef börn eru meðal gesta, skal séð til þess að þau séu ekki eftirlitslaus að leik á göngum og í stiga kirkjunnar.

Kirkjan

Fella- og Hólakirkja er vinsæl fyrir tónleikahald (sjá verðskrá hér að neðan). Þeir sem halda tónleika greiða fast gjald fyrir kirkjuna auk kostnaðar við kirkjuvörslu. Innifalið er ein æfing fyrir tónleika. HljóðX setti upp nýtt öflugt hljóðkerfi  árið 2014. Kirkjan tekur 350 manns í sæti en hægt er að opna inn í safnaðarheimili og komast þá allt að 700 gestir fyrir.

Verðskrá

  • Kirkjan er leigð án endurgjalds fyrir kirkjulegar athafnir, líkt og skírnir, hjónavígslur og útfarir.
  • Þegar safnaðarheimili, kirkjan eða kennslustofan eru leigð þarf einnig að greiða tímagjald vegna starfsmanns. Nánari upplýsingar í s: 557-3280.
  • Leiga á safnaðarheimili 65.000 kr.
  • Leiga á kirkju: 60.000 kr. (innifalið ein æfing)
  • Tímaleiga á kirkju 3.500 kr/klst. ásamt kostnaði við starfsmann utan dagvinnutíma
  • Leiga á sal fyrir húsfélög 20.000 kr.
  • Leiga kennslustofu 30.000 kr.
  • Streymi frá athöfnum í kirkjunni: 25.000 kr.
  • Ef skírnarathöfn fer fram í kirkjunni fæst 30% afsláttur af safnaðarsalnum fyrir veislu.