Þriðjudagar er annasamir dagar í kirkjunni. Við byrjum á starfsmannafundi kl. 8.30, síðan er kyrrðarstund kl. 12 og eldri borgarastarfið kl. 13. Í dag verður sett upp leiksýning í kirkjunni. Gísli á Uppsölum verður settur upp af arnfirsku leikhússtrákunum Elvari Loga og Þresti Leó kl. 14:00. aðgangseyrir 1000 kr. Það verður spennandi. Seinniparturinn fer svo í að slaka sér niður og þá eru dásamlegar stundir fyrir alla „Fyrirbæna og djúpslökun“ Síðan er kóræfing hjá kirkjukórnum 🙂 alltaf gaman hjá okkur.