Laugardaginn 16. febrúar munu kirkjurnar í Breiðholtinu sameinast um skemmtilega nýjung í fermingarstarfinu, en þá munu fermingarbörn úr öllum kirkjum í Breiðholtinu taka þátt í fermingafjöri í Fella-og Hólakirkju frá kl. 10-14. Það verður mikið stuð og gaman og sjá Pétur Ragnhildarson, Arnar Ragnarsson og Alla Rún Rúnarsdóttir um dagskrána.