Næsta sunnudag verður fyrsta fermingin hjá okkur í vor og fermast 17 ungmenni í þeirri athöfn.

Fermingarathöfnin hefst kl. 11:00 og þjóna báðir prestarnir okkar, Sr. Pétur og sr. Jón Ómar.

Kór Fella- og Hólakirkju leiðir tónlistina undir stjórn Arnhildar organista.

Fermingarnar eru alltaf hátíðlegt tímabil í kirkjunni og hlökkum við til þessarar stóru stundar í lífi fermingarbarnanna.

Um kvöldið verða tónleikar á vegum Kórs Fella- og Hólakirkju í tilefni af 35 ára vígsluafmæli kirkjunnar. Það kostar ekkert inn og býður sóknarnefndin tónleikagestum að þiggja veitingar eftir á. Nánari upplýsingar um tónleikana hér.