Fréttir

Félagsstarf eldri borgara þriðjudaginn 14. október.

  Félagsstarf eldri borgara hefst kl. 12:00 eins og vant er með kyrrðarstund. Súpa og kaffið okkar góða á sínum stað. Að þessu sinni fáum við góða gesti í heimsókn, harmonikkuleikarana Elísabetur Einarsdóttur og Elsu Kristjánsdóttur þær koma með fjörið með sér. Fyrirbænastund í lokin. Allir hjartanlega velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur.  

By |2014-10-13T11:00:07+00:0013. október 2014 | 11:00|

Líf og fjör í æskulýðsstarfinu

Það er líf og fjör í æskulýðsstarfinu hjá Fella- og Hólakirkju og alltaf fjölgar í hópnum, síðasta fimmtudagskvöld mætu 26 hressir unglingar og skemmtu sér saman. Nú styttist í  Landsmót Æskulýðssambands þjóðkirkjunnar – ÆSKÞ – en það er stærsti viðburðurinn í æskulýðsstarfi kirkjunnar á hverju ári. Landsmótið verður haldið á Egilsstöðum helgina 26.-28. október og [...]

By |2014-10-10T20:39:45+00:0010. október 2014 | 20:39|

Krílasálmar – Nýtt námskeið hefst 23.október.

  Krílasálma námskeið hefst þann 23.október. Krílasálmar er skemmtilegt tónlistarnámskeið fyrir börn frá u.þ.b. 3 - 18 mánaða og foreldra þeirra. Umsjónarmaður er Guðný Einarsdóttir organisti. Námskeiðið er sex skipti byrjar þann 23. október  og er til 27. nóvember og kostar 4000 kr. Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið gudny.organisti@gmail.com . Nánari [...]

By |2014-10-10T20:06:09+00:0010. október 2014 | 20:06|

Messa sunnudaginn 12.október

Messa kl. 11:00. Guðmundur Karl Ágústasson predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Eyþór Franzson Wechner. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Gídeonfélagið kemur í heimsókn. Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Umsjón hafa Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson ásamt vinsælu brúðunni Viktor. Verið öll innilega velkomin. Boðið [...]

By |2014-10-07T10:46:16+00:007. október 2014 | 10:46|

Fjölskylduguðþjónusta sunnudaginn 5. október

Fjölskylduguðþjónusta kl. 11. Prestur Svavar Stefánsson. Umsjón með stundinni hafa Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson  Litrófið  syngur undir stjórn Sólveigar Önnu Aradóttur og Örn Ýmis Arasonar. Kaffisopi eftir guðþjónustuna. Boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá og brúðan Viktor er sjaldan fjarri góðu gamni. Verið hjartanlega velkomin til kirkju nú sem endranær. Allir velkomnir!

By |2014-09-30T09:58:46+00:0030. september 2014 | 09:58|

Eldri borgarastarfið þriðjudaginn 30. september

Kirkjustarf eldri borgara hefst með kyrrðarstund kl. 12:00. Súpa og brauð eftir stundina. Við fáum góða gesti í heimsókn og nú verður fjör hjá okkur við ætlum að dansa saman og hafa gaman. Spilin og handavinna á sínum stað ásamt kaffinu okkar góða. Allir velkomnir.

By |2014-09-29T20:54:30+00:0029. september 2014 | 20:54|

Sunnudaginn 28.september guðsþjónusta kl. 11.

Guðsþjónusta kl. 11. Prestur Svavar Stefánsson, organisti Eyþór Franzsson Wechner sem stjórnar og söng kórs kirkjunnar. Kaffisopi eftir guðsþjónustuna. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Hreins og Péturs. Verið hjartanlega velkomin til kirkju nú sem endranær! Vinsamlegast kynnið ykkur vetrarstarf kirkjunnar okkar en það er auglýst í Breiðholtsblaðinu sem kom út þann 25. september!

By |2014-09-25T10:15:31+00:0025. september 2014 | 10:15|

Haustlitaferð eldri borgara þriðjudaginn 23.september kl. 13.00

Haustlitaferð eldri borgara verður farinn á morgun 23. september. kl. 13.00. Kyrrðastundin er á sínum stað kl. 12.00 og síðan fáum við okkur súpu saman. Að þessu sinni förum við austur fyrir fjall og keyrum Grafninginn og endum í veitingum í Þrastarlundi. Allir velkomnir og hlökkum til að sjá ykkur.

By |2014-09-22T13:33:41+00:0022. september 2014 | 13:33|

Sunnudaginn 21. september Guðþjónusta kl. 11.00

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti EyþórFranzson Wechner. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Fermingarbörn Hólabrekkusóknar og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðuð til kirkju. Sunnudagaskólinn kl. 11:00. Boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Umsjón hafa Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson og svo er brúðan Viktor sjaldan fjarri góðu gamni. Verið öll innilega velkomin. [...]

By |2014-09-18T12:53:39+00:0018. september 2014 | 12:53|

Foreldramorgun alla fimmtudaga frá 10 – 12

Minnum á foreldramorgnana. Jóhanna og Kristín eru alltaf með heitt á könnunni og taka vel á móti foreldrum og börnum. Upplagt að kíkja við og eiga góða stund með öðrum foreldrum og krílum. Verið velkomin

By |2014-09-17T21:56:03+00:0017. september 2014 | 21:56|
Go to Top