Fréttir

Mikið um að vera í kirkjunni næstu daga.

Þriðjudagur 17. desember Kl. 20 eru jólatónleikar Litrófsins og kórs Fella- og Hólakirkju. Miðaverð kr. 1.500. Sunnudagur 22. desember Kl. 11: Jólasöngvar við kertaljós. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Leikmenn lesa ritningartexta milli sálma.

By |2013-12-09T12:04:43+00:009. desember 2013 | 12:04|

Guðsþjónusta 8. desember

Kæru vinir!   Guðsþjónusta kl. 11 í kirkjunni næsta sunnudag, 8. desember, sem er 2. sunnudagur í aðventu. Sr. Einar Sigurbjörnsson, prófessor prédikar en prestar kirkjunnar, sr. Guðmundur Karl Ágústsson og sr. Svavar Stefánsson þjóna fyrir altari ásamt Ólöfu Margréti Snorradóttur, guðfræðingi. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn organistans Guðnýjar Einarsdóttur.  Á eftir guðsþjónustu bjóða sóknarnefndir [...]

By |2013-12-05T12:13:50+00:005. desember 2013 | 12:13|

Foreldramorgnar alla fimmtudaga

Jóhanna og Kristín sjá um foreldramorgna alla fimmtudaga í Fella- og Hólakirkju. Fimmtudaginn 5. desember verður Volaire kynning. Kaffi og spjall að venju. Láttu sjá þig.

By |2013-12-03T23:32:22+00:003. desember 2013 | 23:32|

Þriðjudagur 3. desember – kirkjustarf aldraðra

Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stundina. Kl. 13-16: Kirkjustarf aldraðra Benedikta Waage kemur í heimsókn. Spil, spjall og handavinna. Framhaldssagan um Bláu trén í Friðheimum verður á sínum stað. Fyrirbænastund í lokin. Umsjón: Ólöf Margrét Snorradóttir

By |2013-12-02T14:32:27+00:002. desember 2013 | 14:32|

Fyrsti sunnudagur í aðventu: fjölskylduguðsþjónusta og aðventukvöld

Sunnudaginn 1. desember verður mikið um að vera í kirkjunni. Kl. 11 er fjölskylduguðsþjónusta þar sem krílin af krílasálmanámskeiði verða í aðalhlutverki. Umsjón er í höndum Guðnýjar Einarsdóttur og Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Prestur er sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Aðventukvöld Fella- og Hólakirkju hefst kl. 20 þar sem Litrófið sýnir helgileik og syngur. Ragnar Schram flytur hugleiðingu [...]

By |2013-11-28T10:07:04+00:0028. nóvember 2013 | 10:07|

Þriðjudagur 26. nóvember

Helgistund klukkan 12 Súpa og brauð eftir stundina. Kirkjustarf aldraðra kl. 13-16 Í dag kemur Bjarni Gíslason frá Hjálparstarfi kirkjunnar og kynnir fyrir okkur Gjöf sem gleður. Spil, spjall og handavinna og að sjálfsögðu framhaldssagan, Bláu trén í Friðheimum. Umsjón: Ólöf Margrét Snorradóttir Allir velkomnir.    

By |2013-11-26T10:16:47+00:0026. nóvember 2013 | 10:16|

Guðsþjónusta sunnudaginn 24. nóvember

Guðsþjónusta klukkan 11. Prestur er sr. Svavar Stefánsson, Ólöf Margrét Snorradóttir, guðfræðingur, prédikar. Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Organisti er Sólveig Anna Aradóttir. Pétur og Hreinn sjá um skemmtilegan sunnudagskóla á sama tíma, eitthvað munu blöðrur koma við sögu hjá þeim. Allir hjartanlega velkomnir.

By |2013-11-21T13:32:24+00:0021. nóvember 2013 | 13:32|
Go to Top