Fréttir

Þriðjudagur 19. nóvember. Lesið úr nýjum bókum.

Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð í boði að lokinni stundinni. Í dag verður lesið úr nýjum bókum. Guðmundur Andri Thorsson les úr bók sinni Sæmd. Edda Andrésdóttir les úr bók sinni Til Eyja. Þá verður hægt að grípa í spil og spjalla. Framhaldssagan verður á sínum stað, Bláu trén í Friðheimum en nú fer [...]

By |2013-11-19T10:43:44+00:0019. nóvember 2013 | 10:43|

Sunnudagur 17. nóvember

Barokkguðsþjónusta klukkan 11, prestur er séra Guðmundur Karl Ágústsson. Allur tónlistarflutningur er í höndum kammerhópsins ReykjavíkBarokk. Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson sjá um skemmtilegan sunnudagaskóla á sama tíma. Allir hjartanlega velkomnir.

By |2013-11-15T10:40:15+00:0015. nóvember 2013 | 10:40|

Þriðjudagur 12. nóvember

Að venju bjóðum við upp á andlega og líkamlega næring kl. 12, það er kyrrðarstund og súpa á eftir. Allir velkomnir. Kl. 13 hefst kirkjustarf aldraðra. Umfjöllunarefnið í dag er farsæl öldrun, um það að eldast vel og viðhalda andlegri heilsu. Létt heilaleikfimi í lok umfjöllunarinnar. Þá verður tími fyrir spil, spjall og handavinnu. Lestur [...]

By |2013-11-11T11:20:59+00:0011. nóvember 2013 | 11:20|

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 10.nóvember

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, Hreinn Pálsson og Pétur Ragnhildarson leiða stundina. Sönghópur úr Litrófnu  kemur og mun syngja og leiða almennan safnaðarsöng . Undirleik annast Guðný Einarsdóttir organisti. Einnig leikur Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts undir stjórn Snorra Heimissonar, Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju [...]

By |2013-11-07T10:09:48+00:007. nóvember 2013 | 10:09|

Þriðjudagur 5. nóvember

Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð í safnaðarheimilinu eftir stundina. Kirkjustarf aldraðra hefst kl. 13. Í dag kemur Guðrún Hildur Rósenkjær frá Annríki og sýnir og segir frá íslenskum þjóðbúningum. Spil og spjall verður á sínum stað sem og framhaldssagan, Bláu trén í Friðheimum. Fyrirbænastund í lok samverunnar. Allir velkomnir. Umsjón: Ólöf Margrét Snorradóttir

By |2013-11-05T09:54:54+00:005. nóvember 2013 | 09:54|

Vöfflukaffi, Allra heilagra messa, sunnudaginn 3.nóvember 2013, kl.11

Guðsþjónusta á Allra heilagra messu sunnudaginn 3.nóvember kl.11. sr. Guðmundur Karl Ágústsson  prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Sr. Svavari Stefánssyni . Kirkjugestir tendra ljós í minningu látinna. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur.Skemmtilegi sunnudagaskólinn er á sama tíma í umsjá Pétur Ragnhildarsonar og Hreins Pálssonar.,,Sólgleraugnadagur” . Mikil gleði og gaman. Verið innilega [...]

By |2013-10-30T10:18:35+00:0030. október 2013 | 10:18|

Þriðjudagur 29. október

Kyrrðarstund og súpa kl. 12. Kirkjustarf aldraðra kl. 13-16. Í dag hlustum við á tónlist og fáum fróðleik um ástsælan söngvara. Förum einnig í léttan spurningaleik áður en tekið verður til við spil og spjall. Framhaldssagan um bláu trén í Friðheimum verður á sínum stað og við endum að venju með fyrirbænastund. Umsjón: Ólöf Margrét [...]

By |2013-10-28T21:21:21+00:0028. október 2013 | 21:21|

Guðsþjónusta sunnudaginn 27. október

Guðsþjónusta kl. 11 árdegis sunnudaginn 27. október sem er ártíðardagur sr. Hallgríms Péturssonar. Prestur Svavar Stefánsson en sr. Hjörtur Pálsson, skáld, prédikar. Organisti og söngstjóri er Guðný Einarsdóttir, félagar úr kór kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng en sungnir verða m.a. sálmar eftir sr. Hallgrím. Einsöng í guðsþjónustunni syngur Karlotta Dögg Jónasdóttir, nemandi í Söngskólanum í Reykjavík. [...]

By |2013-10-23T11:02:32+00:0023. október 2013 | 11:02|

Kirkjustarf aldraðra 22. október

Helgistund kl. 12. Súpa og brauð að henni lokinni. Kl. 13 Ferðasaga í myndum og máli. Sr. Svavar Stefánsson segir frá ferð til Finnlands. Spil og spjall er á sínum stað sem og framhaldssagan, Bláu trén í Friðheimum. Bænastund að dagskrá lokinni. Umsjón: Ólöf Margrét Snorradóttir.

By |2013-10-22T10:02:54+00:0022. október 2013 | 10:02|
Go to Top