Fréttir

Sunnudagur 9.september 2012

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór Fella -og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Ástu Haraldsdóttir. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Á sama tíma er sunnudagaskóli í safnaðarheimili kirkjunnar í umsjá Hreins Pálssonar og Péturs Ragnhildarsonar. Þar læra krakkarnir að búa til nammi. Mikið fjör og gaman fyrir alla aldurshópa. Verið innilega velkomin [...]

By |2012-09-05T11:20:52+00:005. september 2012 | 11:20|

Sunnudagurinn 2.sept. 2012

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni leiða stundina ásamt nýjum sunnudagaskólakennurum, Hreini Pálssyni og Pétri Ragnhildarsyni. Mikill söngur og fjölbreytt dagskrá sem höfðar til allra aldurshópa. Undirleik annast Íris Andrésdóttir. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju

By |2012-08-29T10:04:14+00:0029. ágúst 2012 | 10:04|

Sunnudagskvöld 26.ágúst 2012

Kvöldguðsþjónusta kl.20. Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni leiðir stundina og flytur hugleiðingu. Tónlistarnemar Ólafs Elíassonar, Ingibjörg Sól Ingólfsdóttir og Hróbjartur Böðvarsson annast undirleik. Jóhanna Skúladóttir, Íris og Marta Andrésdætur syngja þrísöng. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir.Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2012-08-21T11:39:52+00:0021. ágúst 2012 | 11:39|

Guðsþjónusta sunnudagskvöldið 19. ágúst

Sunnudagskvöldið 19.ágúst verður kvöldguðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju. Guðsþjónustan hefst kl.20. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Tónlistarnemendur Ólafs Elíassonar, Ingibjörg Sól Ingólfsdóttir og Hróbjartur Böðvarsson, munu spila og annast undirleik í þessari kvöldguðsþjónustu. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Verið innilega velkomin.

By |2012-08-16T11:01:01+00:0016. ágúst 2012 | 11:01|

Sunnudagskvöldið 12.ágúst 2012

Sunnudagskvöldið 12.ágúst verður kvöldguðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju. Guðsþjónustan hefst kl.20. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Tónlistarnemi Ólafs Elíassonar, Sigurður Thorlacíus, mun spila og annast undirleik í þessari kvöldguðsþjónustu. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Verið innilega velkomin.

By |2012-08-09T13:26:22+00:009. ágúst 2012 | 13:26|

Tónleikar 31.júlí

Trio Bruun frá Kaupmannahöfn er á tónleikaferð um landið og heldur tónleika í Fella- og Hólakirkju 31.júlí nk kl. 20.00. Tríóið skipa þau Hetna Regitze Bruun, sópransöngkona, Steffen Bruun, bassasöngvari og Philip Schmidt-Madsen, orgelleikari. Efnisskráin er afar fjölbreytt og er uppistaða hennar rómantísk söngverk  í bland við dönsk sönglög og orgelverk. Aðgangseyrir er kr. 1.500 [...]

By |2012-07-27T11:27:06+00:0027. júlí 2012 | 11:27|

SUMARDAGSKRÁ FELLA- OG HÓLAKIRKJU

Sunnudaginn 10.júní verður gönguguðsþjónusta á vegum safnaðanna í Breiðholti. Að þessu sinni verður hist við Seljakirkju kl.19 og gengið þaðan um Seljahverfið. Kl.20 verður helgistund í Seljakirkju. Prestar Seljakirkju leiða guðsþjónustuna. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á kaffi í safnaðarheimili kirkjunnar. Verið innilega velkomin. 24.júní verður gönguguðsþjónusta á vegum safnaðanna í Breiðholti. Gengið verður frá [...]

By |2012-06-05T10:06:34+00:005. júní 2012 | 10:06|

Göngumessa sunnudaginn 3.júní 2012

,,Göngumessa" í Fella- og Hólakirkju. Um er að ræða samstarfsverkefni á milli kirknanna í Breiðholti. Safnast verður saman við Fella- og Hólakirkju kl.19 og gengið um hverfið. Að lokinni göngu verður helgistund kl.20 í Fella- og Hólakirkju. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Kirkjuvörður og  [...]

By |2012-05-29T10:58:07+00:0029. maí 2012 | 10:58|

Hátíðarguðsþjónusta á Hvítasunnudag 27.maí 2012

Hátíðarguðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Mikaelskoret frá Noregi heimsækir okkur og syngur fyrir okkur nokkur lög. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Kirkuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju :)

By |2012-05-22T09:43:15+00:0022. maí 2012 | 09:43|

Guðsþjónusta sunnudaginn 20.maí 2012

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Börn og foreldrar af krílanámskeiðum taka þátt í guðsþjónustunni með gleði og söng. Umsjón með Krílanámskeiðum Fella- og Hólakirkju hefur Guðný Einarsdóttir. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2012-05-15T09:58:56+00:0015. maí 2012 | 09:58|
Go to Top