Guðsþjónusta sunnudaginn 13.maí 2012
Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Sólveig Anna Aradóttir. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju
Vorhátíð barnastarfs Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 6.maí 2012
Vorhátíð barnastarfs Fella- og Hólakirkju verður haldin sunnudaginn 6.maí kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Hátíð fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna. Mikill söngur og krakkafjör. Skotta úr Stundinni okkar kemur í heimsókn, boðið verður upp á pylsur og candy floss,andlitsmálun, skrúðganga og margt fleira skemmtilegt. Litrófið syngur og leiðir söng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Undirleik [...]
Guðsþjónusta sunnudaginn 29.apríl 2012 kl.11
Guðsþjónusta sunnudaginn 29.apríl 2012 kl.11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ragnhildi Ásgeirsdóttur djákna. Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna F. Björnsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur djákna. Börnin undirbúa vorhátíð barnastarfsins. Skemmtileg og fjölbreytt dagskrá. Verið innilega velkomin í [...]
Guðsþjónusta sunnudagurinn 22.apríl 2012, kl.11
Sunnudaginn 22.apríl verður guðsþjónusta kl.11. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Tónlistarnemar annast tónlistarflutning. Á sama tíma er sunnudagaskóli í safnaðarheimili kirkjunnar. Guðrún Hrönn og Jóhanna taka á móti börnunum í búningapartýi. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin [...]
Fögnum sumri saman á Sumardaginn fyrsta í Fella- og Hólakirkju!
Sumarguðsþjónusta á Sumardaginn fyrsta kl.11. Sannkölluð tónlistarveisla í Fella- og Hólakirkju. Kirkjukórinn syngur meðal annars kafla úr Messu í G-dúr eftir Franz Schubert og Faðir vor eftir Joseph Rheinberger undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur. Undirleik á orgel annast Björn Steinar Solbergsson. Einsöngvari er Eyrún Ósk Ingólfsdóttir sópransöngkona. Þórey Dögg Jónsdóttir djákni flytur hugleiðingu. Sr. Guðmundur Karl [...]
Krílasálmar – nýtt námskeið
Nýtt námskeið hefst mánudaginn 16. apríl 2012. Kennt verður á mánudagsmorgnum kl. 10:30 í Fella- og Hólakirkju og er námskeiðið sex skipti. Skráning fer fram í síma 557 3280 á daginn en einnig má senda tölvupóst á gudny.organisti@gmail.com. Námskeiðsgjald er 3000 kr. Enn eru örfá pláss laus Nánari upplýsingar má finna hér.
Aðalsafnaðarfundur
Aðalsafnaðarfundur Fella- og Hólabrekkusókna verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar þriðjudaginn 17.apríl nk kl. 20:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefndir Fella- og Hólabrekkusókna
Guðsþjónusta sunnudaginn 15.apríl 2012
Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Vilborg Helgadóttir söngkona syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Nemendur í tónlistarnámi spila á orgel og píanó. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar en að þessu sinni verða búnar til sumargjafir. Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju : )