Fréttir

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

Starfsfólk og sóknarnefndir kirkjunnar óska öllum gleðilegs árs og hvetjum ykkur að leggja leiðina í kirkjuna. Safnaðarstarfið er að hefjast á ný eftir hátíðarnar. Hér má t.d. sjá hvað er framundan í starfi eldri borgara: http://kirkjan.is/fellaogholakirkja/safnadarstarf/eldri-borgarar/

By |2012-01-05T13:54:20+00:005. janúar 2012 | 13:54|

Jólatónleikar Kórs Fella- og Hólakirkju

Þriðjudaginn 20. desember kl. 20:30 mun Kór Fella- og Hólakirkju ásamt þeim Áshildi Haraldsdóttur flautuleikara og Katie Buckley hörpuleikara halda jólatónleika við kertaljós í Fella- og Hólakirkju. Fluttar verða sígildar jólaperlur frá ýmsum tímum og löndum, m.a. kaflar úr Hnotubrjótnum eftir Tchaikovsky, íslensk sígild jólalög og jólalag frá Katalóníu auk þess sem áheyrendum gefst tækifæri á að [...]

By |2011-12-15T09:24:48+00:0015. desember 2011 | 09:24|

Jólasöngvar við kertaljós kl.11 sunnudaginn 18.desember

Jólasöngvar við kertaljós kl.11. Notaleg stund með jólasöngvum og  ritningarlestri. Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni leiða stundina. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í kirkjuna okkar.

By |2011-12-13T09:40:06+00:0013. desember 2011 | 09:40|

Sunnudagurinn 11.desember 2011

Jólaskemmtun kl.11. Gengið verður í kringum jólatréð. Kannski koma gestir úr fjöllunum. Mikið fjör og gaman. Guðsþjónusta kl.14. Sr. Gísli H. Kolbeins prédikar. Sr.Guðmundur Karl Ágústsson, Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Gerðubergskórinn syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Kára Friðriksson. Organisti Guðný Einarsdóttir. Kaffiveitingar eftir stundina. Meðhjálparar Kristín [...]

By |2011-12-06T10:29:12+00:006. desember 2011 | 10:29|

Tónleikar Litrofsins

Miðvikudaginn 7.desember kl. 20.00 verður fjör í kirkjunni þegar Litrófið heldur sína aðventutónleika. Komið og takið þátt í gleðinni og bjóðið vinum og vandamönnum með. Aðgangur 500 krónur.

By |2017-02-02T13:02:14+00:001. desember 2011 | 10:28|

Sunnudagurinn 4.desember

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur sr.Guðmundur Karl Ágústsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Organisti Guðný Einarsdóttir. Börn og foreldrar af Krílasálmanámskeiði haustsins taka þátt í guðsþjónustunni. Meðhjálpari og kirkjvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin.  

By |2011-11-29T11:02:11+00:0029. nóvember 2011 | 11:02|

FYRSTI SUNNUDAGUR Í AÐVENTU

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sóley Björk Einarsdóttir leikur á trompet. Konur úr kvenfélagi Fjallkonurnar tendra fyrsta kertið á aðventukransinum. Sunnudagaskóli á sama tíma. Náttfatapartý hjá börnunum. Umsjón og ábyrgð með sunnudagaskólanum hefur Þórey Dögg Jónsdóttir. Eftir guðsþjónustuna mun Guðný Einarsdóttir organisti flytja örtónleika. [...]

By |2011-11-22T10:06:34+00:0022. nóvember 2011 | 10:06|

Sunnudagurinn 20.nóvember 2011

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar D. Jónsdóttur. Piparkökur málaðar. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2011-11-15T10:25:08+00:0015. nóvember 2011 | 10:25|

Söngleikurinn Litla Ljót

Listasmiðjan Litróf setur upp og sýnir söngleikinn um Litlu Ljót eftir Hauk Ágústsson laugardaginn 12.nóvember kl.16 í Fella- og Hólakirkju. Sýningin er skemmtileg og lífleg og höfðar til allra aldurshópa. Ókeypis aðgangur og allir innilega velkomnir.

By |2011-11-08T09:53:15+00:008. nóvember 2011 | 09:53|
Go to Top