Sunnudagurinn 22.maí 2011
Guðsþjónusta kl.11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Kirkjustarf eldri borgara fer í vorferð þriðjudaginn 24.maí. Verð 3000 krónur. Skráning í s: 557 3280.
Guðsþjónusta kl.11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Ásta Haraldsdóttir. Kirkjustarf eldri borgara fer í vorferð þriðjudaginn 24.maí. Verð 3000 krónur. Skráning í s: 557 3280.
Snemma á fimmtudagsmorgun mun Kór Fella- og Hólakirkju leggja af stað í tónleikaferð til Kaupmannahafnar. Kórinn syngur tónleika í Skt. Pauls kirkju sem íslenski söfnuðurinn í Kaupmannahöfn hefur haft afnot af. […]
Í gær, 15.maí, vígði biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson, Þóreyju Dögg Jónsdóttur til djáknaþjónustu við Fella- og Hólakirkju. Það er míkið gleðiefni fyrir okkur að fá svo góða konu til starfa. Vígsluvottar voru sr. Svavar Stefánsson, sr. Guðmundur Karl Ágústsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni. Árni Svanur Daníelsson tók þessa mynd. Fleiri myndir
Guðsþjónusta sunnudagsins verður í Dómkirkjunni kl. 11. Þá vígir biskup Íslands m.a. Þóreyju Dögg Jónsdóttur sem djákna við Fella- og Hólakirkju. Meðal vígsluvotta verða báðir sóknarprestarnir, sr. Svavar og sr. Guðmundur Karl og Ragnhildur djákni. Í boði verða sætaferðir frá kirkjunni kl. 10:15 til Dómkirkjunnar og til baka að guðsþjónustu lokinni. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir
Útvarpsguðsþjónusta verður haldin sunnudaginn 8.maí kl.11. Sr. Svavar Stefánsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttir organista. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin.
Guðsþjónusta kl.11 Prestur sr. Svavar Stefánsson. Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Hugleiðing dagsins tekur mið af því að þessi dagur er baráttu- og hátíðisdagur vinnandi stétta. "Verður er verkamaðurinn launa sinna", stendur í Ritningunni. Við hugleiðum það og hvernig Jesús umgekkst fólk sem krafðist réttlætis. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.
Aðalsafnaðarfundur Fella- og Hólabrekkusókna verður haldinn í safnaðarheimili kirkjunnar þriðjudaginn 26.apríl nk og hefst kl. 20.00. Venjulega aðalfundarstörf. Sóknarnefndirnar
Listasmiðjan Litróf verðlaunuð. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent í gær við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin. […]
Pálmasunnudagur Fermingarmessa Hólabrekkusóknar kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Fermingarmessa Fellasóknar kl.14. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Við fermingarathafnirnar verður flutt vönduð tónlist af kirkjukór Fella- og Hólakirkju undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur kantors kirkjunnar. Skírdagur Fermingarmessa Fellasóknar kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson.. Fermingarmessa Hólabrekkusóknar kl.14. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson Við fermingarathafnirnar verður flutt vönduð tónlist [...]
Ferðalag barnastarfsins kl.11. Umsjón og ábyrgð Þórey Dögg Jónsdóttir. Um er að ræða skemmtilega fjölskylduferð. Kl.14 verður fermingarguðsþjónusta Hólabrekkusóknar. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kirkjukórinn syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Guðný Einarsdóttir.Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.