Starf fyrir eldri borgara
Ný styttist í að kirkjustarfið hefjist af fullum krafti eftir sumarfrí. Fyrsta samvera eldri borgara verður 7. september en dagskrá haustsins er komin á vefinn. Skoða má hana hér.
Ný styttist í að kirkjustarfið hefjist af fullum krafti eftir sumarfrí. Fyrsta samvera eldri borgara verður 7. september en dagskrá haustsins er komin á vefinn. Skoða má hana hér.
Kvöldguðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju kl. 20 sunnudaginn 15. ágúst Prestur er sr. Svavar Stefánsson. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Félagar úr kór kirkjunnar leiða almennan safnaðarsöng. Fermingarbörn næsta vors í Fellasókn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðuð til guðsþjónustu. Stuttur fundur verður með þeim eftir guðsþjónustuna þar sem fermingarstörfin í vetur verða kynnt. Fræðslunámskeið fyrir fermingarbörn [...]
Þá hefst helgihald í kirkjunni að nýju n.k. sunnudag eftir um mánaðarhlé. Kvöldguðsþjónusta verður í Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 8. ágúst kl. 20. Prestur sr. Svavar Stefánsson, organisti Guðný Einarsdóttir. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng. Verið öll velkomin til kirkjunnar til að njóta góðrar og uppbyggilegrar stundar.
Organisti Fella- og Hólakirkju verður með tónleika í tónleikaröðinni "Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 2010". Tónleikarnir verða laugardaginn 24. júlí kl. 12 og sunnudaginn 25. júlí kl. 17. Glæsileg orgelverk verða á efnisskránni og ekki er efi að Guðný mun standa vel fyrir sínu. Það væri gaman ef við héðan úr Fella- og Hólahverfum myndum fjölmenna [...]
Líkt og undanfarin ár verður ekkert reglulegt helgihald í júlí í kirkjunni. Prestur er þó við störf þennan tíma og sinnir þeim verkefnum sem um er beðið og kirkjan opin fyrir athöfnum. Bent er á helgihald í nágrannakirkjum þennan tíma. Næsta guðsþjónusta verður sunnudagskvöldið 8. ágúst kl. 20. Prestur sr. Svavar Stefánsson.
Á síðustu tónleikum í tónleikaröðinni Sumartónar í Elliðaárdal koma gestir alla leið frá Ástralíu. Það er Kór St. Michael´s Grammar School sem skipaður er unglingum á aldrinum 13 – 18 ára. Kórinn hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir flutning sinn. Þau munu flytja fjölbreytta og vandaða efnisskrá sem spannar a.m.k. fimm aldir og heiminn allan! Kórinn [...]
Miðvikudaginn 7. júlí er komið að þriðju og næstsíðustu tónleikunum í röðinni Sumartónar í Elliðaárdal hér í kirkjunni. Þær stöllur, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti og Eydís Franzdóttir óbóleikari munu flytja fjölbreytta tónlist eftir ýmsa höfunda. Báðar hafa þær látið að sér kveða við tónleikahald landsins og má því sannarlega eiga von á góðu! Tónleikarnir hefjast [...]
Miðvikudaginn 30. júní kl. 20 verða aðrir tónleikar í röðinni Sumartónar í Elliðaárdal. Þá mun Tríó Gunnars Hilmarssonar flytja frönsk djasslög og aðra tónlist í anda Django Reinhardt. Tríóið skipa auk Gunnars þeir Jóhann Guðmundsson, gítar og Leifur Gunnarsson, kontrabassi. Gestur kvöldsins verður Gréta Salóme Stefánsdóttir, fiðla. Þetta verða án efa skemmtilegir og líflegir tónleikar! [...]
Fyrstu sumartónleikarnir í tónleikaröðinni "Sumartónar í Elliðaárdal" verða í Fella- og Hólakirkju í kvöld, miðvikudag 23. júní kl. 20. Guðný Einarsdóttir, organisti og Svafa Þórhallsdóttir, sópran koma fram með vandaðad dagskrá m.a. nokkur lög eftir Pál Ísólfsson og önnur tónskáld. Verið hjartanlega velkomin. Aðgangseyrir er kr. 1.000
Sunnudaginn 24. júní verður helgistund kl. 20.00. Prestur er sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti er Guðný Einarsdóttir, kantor. Félagar úr kór Fella-og Hólakirkju leiða almennan safnaðarsöng. Eftir helgistundina verður grillað og kirkjugestum boðið upp á grillmat og meðlæti. Magnús ætlar að sjá um grillið og Jóhanna, meðhjálpari, um meðlætið. Verið hjartanlega velkomin.