Fréttir

Kirkjustarf í júlí

Nú í júlí verður ekki reglulegt helgihald á sunnudögum í kirkjunni. Er vísað á nágrannakirkjur. Hins vegar er kirkjan opin til athafna og sr. Svavar Stefánsson verður við sín störf þennan mánuð. Vinsamlegast hringið í síma kirkjunnar, 557-3280 eða síma hans 860-2266 ef þið þurfið á þjónustu að aðstoð að halda. Minnt er á "Sumartóna í [...]

By |2009-06-30T14:09:48+00:0030. júní 2009 | 14:09|

Sunnudagur 28. júní

Athugið tímann Guðsþjónusta klukkan 20:00,  Grillmessa Prestur sr Guðmundur Karl Ágústsson. séra Guðmundur er nýkominn úr námsleyfi sínu frá USA, og ætlar að messa með okkur. Kór Fella- og Hólakirkju annast tónlistina,  undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur, kantors. Þetta er okkar árlega grillmessa, þar sem Magnús mun grilla fyrir okkur og við eigum síðan saman góða kvöldstund.

By |2009-06-22T12:54:35+00:0022. júní 2009 | 12:54|

Sumartónar í Elliðaárdal

Fella- og Hólakirkja mun í sumar standa fyrir tónleikaröðinni Sumartónar í Elliðaárdal. Um er að ræða röð vandaðra tónleika sem haldnir verða á fimmtudagskvöldum kl. 20  í júlí 2009 og er þetta í fyrsta sinn sem slík tónleikaröð er haldin í kirkjunni. Margir erlendir gestir, aðallega frá Norðurlöndunum, munu koma fram á tónleikum raðarinnar. Sjá [...]

By |2009-06-18T14:00:38+00:0018. júní 2009 | 14:00|

Sunnudagurinn 7. júni

Framundan er skemmtilegt samstarf safnaðanna í Breiðholti, en í júni verða haldnar svonefndar göngumessur í kirkjunum okkar. Það hefst sunnudaginn 7. júní þegar við komum saman við Seljakirkju klukkan 10.00. Þaðan verður gengið að Breiðholtskirkju undir leiðsögn Birnu Bjarnleifsdóttur sem mun segja frá merkum stöðum á leiðinni. Guðsþjónusta hefst svo í Breiðholtskirkju kl. 11. 00. Eftir [...]

By |2009-06-04T10:47:46+00:004. júní 2009 | 10:47|

Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag

Hátíðarguðsþjónusta verður á hvítasunnudag kl. 11. Sr. Þórhildur Ólafs prédikar og er þetta síðasta guðsþjónusta hennar sem setts sóknarprests Hólabrekkuprestakalls en starfstíma hennar við kirkjuna lýkur nú 1. júní. Við guðsþjónustuna þjóna sr. Svavar Stefánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni, fyrir altari en organisti verður Ásta Haralds og kór kirkjunnar syngur.

By |2009-05-28T09:24:14+00:0028. maí 2009 | 09:24|

Sunnudagur 24. maí

Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Guðsþjónustan er helguð ungabörnum og aðstandendum þeirra en þau hafa verið á "Krílarnámskeiði" undir leiðsögn Guðnýjar Einarsdóttur, kantors. En allir eru velkomnir og það er áhrifamikið að sjá og upplifa með börnunum og aðstandendum þeirra árangur þessa merkilega starfs. Verið öll hjartanlega velkomin

By |2009-05-22T09:45:41+00:0022. maí 2009 | 09:45|

Uppstigningardagur 21. maí

Á uppstigningardag 21. maí verður farið í heimsókn í Hafnarfjarðarkirkju. Farið verður með rútu frá kirkjunni kl. 13.30. Skráning í síma 557 3280.

By |2009-05-16T14:15:30+00:0016. maí 2009 | 14:15|

Taize-messa og altarisganga kl. 11.00

Sunnudagurinn 17.maí, 5. sunnudagur eftir páska, verður Taize-messa og altarisganga kl. 11.00. Prestur er sr. þórhildur Ólafs. Kór Fella- og Hólakirkju annast tónlistina, söngur og trompetleikur undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur, kantors.

By |2009-05-16T14:08:09+00:0016. maí 2009 | 14:08|
Go to Top