Fréttir

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 22.apríl. Síðasti sunnudagaskóli vetrarins.

Það verður líf og fjör á lokahátíð sunnudagaskólans. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar ásamt Pétri, Ástu og Kristínu.  Arnhildar Valgarðsdóttur organisti spilar undir söng. Eftir stundina verður pylsupartý. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eigum skemmtilega stund saman. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir

By |2018-04-17T10:45:13+00:0017. apríl 2018 | 10:44|

Barnamenningarhátíð: Ég heyri svo vel

Verið velkomin á tónleika á Barnamenningarhátíð Ég heyri svo vel, miðvikudag 18. apríl kl. 9 í Fella-og Hólakirkju. Kór barna, skipaður 120 börnum úr 1. og 2. bekk Hólabrekkuskóla, syngur falleg sönglög eftir íslensku tónskáldin og stórafmælisbörnin Kristjönu Stefánsdóttur (1968), Ólaf Hauk Símonarson (1948), Atla Heimi Sveinsson (1938) og Jón Ásgeirsson (1928). Hljómsveit skipuð nemendum og kennurum [...]

By |2018-04-17T09:49:19+00:0017. apríl 2018 | 09:45|

Eldriborgarastarf þriðjudaginn 17. apríl

Kyrrðarstund kl. 12:00. Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð á vægu verði. Félagsstarfið byrjar kl. 13:00. Við ætlum að dansa línudans og eiga skemmtilegan dag. Eftir línudansinn spilum við og spjöllum. Verið hjartanlega velkomin.

By |2018-04-15T18:37:41+00:0015. apríl 2018 | 18:37|

Fyrirbæn og djúpslökun alla þriðjudaga frá kl. 17:30 – 18:30 Allir velkomnir

Fyrirbæn og djúpslökun alla þriðjudaga frá kl. 17:30 – 18:30 Allir velkomnir Kristín djákni byrjar stundina með fyrirbæn, síðan tekur Edit jógakennari við og leiðir hópinn inn í kyrrðina og hvíldina þar sem andinn vex og umvefur. Hægt er að skrifa bænir í bænabók áður en stundin hefst. Gott að koma í hlýrri peysu og [...]

By |2018-04-17T10:45:45+00:009. apríl 2018 | 09:31|

Eldriborgarastarf þriðjudaginn 10. apríl

Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista, súpa og brauð eftir stundina. Við fáum góðan gest til okkar kl. 13 Guðrún Árný Guðmundsdóttir söngkona syngur fyrir okkur. Verið öll hjartanlega velkomin í gott samfélag. 

By |2018-04-09T09:25:50+00:009. apríl 2018 | 09:25|
Go to Top