Fréttir

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 27. febrúar

Það verður skemmtilegur þriðjudagur hjá okkur og nóg um að vera. Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Vinir okkar í  grafarvogskirkju koma í heimsókn kl. 13 og við tökum vel á móti þeim. Sr. Kristinn Ágúst heldur stuttan fyrirlestur um hamingjuna, Þorvaldur kemur með nikkuna og við syngjum [...]

By |2018-02-26T08:47:00+00:0026. febrúar 2018 | 08:47|

Góugleði eldriborgara

Fella- og Hólakirkju 6. mars 2018 kl.18.00 Góugleði sem engin ætti að láta framhjá sér fara! Hinar ægifögru nornir fylgja árstíðunum og hafa núna brugðið sé í góunornagervi. Góan fer þeim vel enda kvenlegar með eindæmum. Nornirnar eru Arnhildur Valgarðsdóttir, Berta Dröfn Ómarsdóttir, Elsa Waage, Íris Sveinsdóttir og Svava Kristín Ingólfsdóttir. Þær galdra fram dagskrá [...]

By |2018-03-05T11:16:56+00:0022. febrúar 2018 | 11:14|

Guðsþjónusta sunnudaginn 25. febrúar kl. 11

Á sunnudaginn 25. febrúar er guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 Pétur Ragnhildarson guðfræðinemi predikar og sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Nemendur í selló leik Agnes Sjöfn Reynisdóttir og Silja Rún Högnadóttir spila. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir Verið velkomin    

By |2018-02-20T21:12:05+00:0020. febrúar 2018 | 21:12|

Biblíukvöld: Nýja testamentið

Miðvikudaginn 21. febrúar kl. 20-21 verður Biblíukvöld í kirkjunni og mun sr. Guðmundur Karl Ágústsson fjalla um Nýja testamentið. Samveran er öllum opin og auðvitað kostar ekkert að taka þátt.

By |2018-02-20T12:25:54+00:0020. febrúar 2018 | 12:25|

Karlakaffi föstudaginn 23. febrúar kl. 10 – 11:30

Karlakaffi! Hlökkum til að sjá ykkur sem flesta Má bjóða þér í kaffi og vínabrauð, spjall og samveru. Gestur okkar er Sigurbjörn Þorkelsson rithöfundur og ljóðskáld. Sigurbjörn ætlar að spjalla um lífið og tilveruna. Láttu sjá þig  við tökum hlýlega á móti ykkur Fella-og Hólakirkja, Hólabergi 88, 111 Rvk    

By |2018-02-26T09:22:35+00:0020. febrúar 2018 | 10:13|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 20. febrúar

Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12:00 gæðum okkur að súpu og brauði eftir stundina. Gestur okkar í dag er góður kunningi Pétur Bjarnason. Pétur ætlar að tala um kyndilmessu og hlökkum við til að fá hann í heimsókn. Fastir liðir á sínum stað. Spilum, prjónum, föndrum og púslum, kíkjum í blöðin og spjöllum saman. Allir [...]

By |2018-02-19T10:14:07+00:0019. febrúar 2018 | 10:00|

Guðsþjónusta sunnudaginn 18. febrúar kl. 11:00 Konudagur

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11 Kristín Kristjánsdóttir djákni þjónar og flytur hugvekju. Kór kirkjunnar syngur létt lög undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista Reynir Þormar spilar á saxafón. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir Í tilefni dagsins bjóða karlar upp á nýbakaðar vöfflur með rjóma eftir stundina. Verið velkomin

By |2018-02-13T10:47:56+00:0013. febrúar 2018 | 10:40|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 13. febrúar

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 13. febrúar Við byrjum á kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Saltkjöt og baunir á Sprengidegi Við syngjum saman og höfum gaman. Kaffið okkar góða, hannyrðir og spilin verða á sínum stað ásamt fyrirbænastundinni. Allir hjartanlega velkomnir,

By |2018-02-11T20:21:18+00:0011. febrúar 2018 | 20:21|

Æskulýðsmótið Friðrik

Vegna veðurs hefur mótshöldurum verið ráðlagt af lögreglu að fresta heimferð til morguns 12. febrúar. Engar áhættur verða teknar með tilraunir til þess að komast heim. Öryggi barnanna gengur fyrir og ef við erum ekki viss, þá förum við ekki. Veðurspáin fyrir morgundaginn er góð og áætluð brottför er í fyrramálið. (Nánari tímasetning síðar) Bæði börn [...]

By |2018-02-11T12:31:37+00:0011. febrúar 2018 | 12:31|

Guðsþjónusta og barnastarf kl. 11

Sunnudaginn 11. febrúar verður guðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttir. Pétur og Ásta leiða sunnudagaskólann.

By |2018-02-08T10:03:52+00:008. febrúar 2018 | 10:03|
Go to Top