Biblíukvöld í Fella-og Hólakirkju
Miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20-21 verður Biblíukvöld í kirkjunni og mun sr. Jón Ómar Gunnarsson fjalla um Gamla testamentið. Samveran er öllum opin og auðvitað kostar ekkert að taka þátt.
Miðvikudaginn 7. febrúar kl. 20-21 verður Biblíukvöld í kirkjunni og mun sr. Jón Ómar Gunnarsson fjalla um Gamla testamentið. Samveran er öllum opin og auðvitað kostar ekkert að taka þátt.
Eldriborgarastarf þriðjudaginn 6. febrúar Kyrrðarstund kl. 12. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson sér um stundina ásamt Arnhildir Valgarðsdóttur organista. Súpa og brauð á vægu verði eftir stundina. Sr. Sigurjón Árni flytur erindi og spilar á saxafóninn og við eigum góðan dag saman. Verið hjartanlega velkomin
Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar hittumst við og eigum góða stund saman með Valgerði okkar Gísladóttur. Við byrjum með stuttri helgistund inn í kirkju en færum okkur síðan fram í safnaðarsal. Góð og nærandi samvera. Við ætlum að tala um að þessu sinni " Eftirminnilegan dag í lífi mínu" Kaffi og meðlæti og allir velkomnir.
Kyrrðastund kl.12:00 í umsjá Kristínu djákna og Arnhildar organista, súpa og brauð eftir stundina. Gestur okkar í dag er Guðmundur Brynjólfsson rithöfundur, djákni og framkvæmdarstjóri Biblíufélagsins. Guðmundur les úr bók sinni Tímagarðurinn ný skáldsaga sem kom út núna um jólin. Frábær bók sem hefur fengið mjög góða dóma. Allir velkomnir
Má bjóða þér í kaffi og vínabrauð, spjall og samveru. Gestur okkar er Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrum hæstaréttardómari. Jón Steinar hefur frá mörgu að segja, hann ætlar að spjalla um lífið og tilveruna, dómskerfið á Íslandi og margt fleira. Láttu sjá þig við tökum hlýlega á móti ykkur Starfsfólk Fella-og Hólakirkju [/fusion_text][/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]
Guðsþjónusta kl. 11.00 Gídeonfélagar taka þátt í guðsþjónustunni Sigurbjörn Þorkelsson predikar, Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Einsöngur Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir og Inga Backmann Reynir Þormar spilar á Saxafón Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Péturs og Ástu Kaffisopi eftir stundina Meðhjálpari. Jóhanna Freyja Björnsdóttir Verið velkomin
. Þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld, ef þig langar að slaka á, losa um spennu og streitu, efla sköpunarkraftinn og bæta svefninn þá eru þetta stundir fyrir þig. Allir velkomnir og engin aðgangseyrir
Við fögnum þorranum og höldum þorrablót að gömlum sið. Þorvaldur kemur með nikkuna og við syngjum og höfum gaman. Verið velkomin
Barnastarf kirkjunnar hófst í vikunni sem leið. Foreldramorgun fyrir ungabörn og foreldra á fimmtudögum kl. 10:00. Sunnudagaskóli fyrir 4-7 ára börn á sunnudögum kl. 11. Vinadeild fyrir 3.-4. bekk á fimmtudögum kl. 15:30 - 16:30. Leikjafjör fyrir 5.-7. bekk á fimmtudögum kl. 17-18. Unglingadeild fyrir 8.-10. bekk á fimmtudögum kl. 20-22. Umsjónarmaður barnastarfsins er Pétur [...]
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00. Sr Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Pétur Ragnhildarson og Ásta Guðmundsdóttir taka á móti börnunum í sunnudagaskólann og Viktoría kemur í heimsókn. Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir, einsöngur Arnþrúður Ösp Karlsdóttir. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina, verið velkomin