Fréttir

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 25. apríl

Við byrjum á kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Síðan fáum við góða súpu hjá Jóhönnu og Kristínu eftir stundina. Við ætlum að hafa konu og karladag. Karlar pútta og leika sér en konur fá tískusýningu og kennslu um föðrun. Við spilum, prjónum og spjöllum saman. Verið hjartanlega velkomin 

By |2017-04-24T13:33:50+00:0024. apríl 2017 | 13:33|

VORTÓNLEIKAR Í KVÖLD KL. 20

Vortónleikar Vörðukórsins og Kirkjukórs Fella- og Hólakirkju í kvöld kl. 20:00 Einsöngur: Kristín R. Sigurðardóttir og Inga J. Backman Matthías Stefánsson leikur á fiðlu Stjórnendur: Eyrún Jónasdóttir og Arnhildur Valgarðsdóttir Boðið upp á veitingar í hlé. Aðgangseyrir 3000 kr. ókeypis fyrir börn. Tekið verður á móti gestum með Harmónikuleik.

By |2017-04-21T11:37:44+00:0021. apríl 2017 | 11:37|

Eldri borgarastarf

Kyrrðarstund kl. 12 Súpa og brauð eftir stundina. Gestur okkar í dag er Óli Þ. Guðbjartsson fyrrv. Dóms - og kirkjumálaráðherra. Við eigum góða stundir saman, spilum, prjónum og kíkjum í blöðin. Verið velkomin

By |2017-04-18T10:42:46+00:0018. apríl 2017 | 10:42|

Aðalfundur Fella- og Hólasóknar

Aðalfundur Fella- og Hólasóknar Fundurinn verður haldinn í safnaðarsal Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 25. apríl og hefst kl. 19.30. Á dagskrá fundarins verða lögbundin aðalfundarstörf. Starfsskýrslur og starfsáætlanir um safnaðarstarfið kynntar. Reikningar kirkjunnar fyrir liðið ár og fjárhagsáætlun þessa árs lögð fram til samþykktar Önnur mál   Rétt til fundarsetu eiga allir þeir sem búa [...]

By |2017-04-11T10:31:44+00:0011. apríl 2017 | 10:31|

Dymbilvikan

Síðasta vikan fyrir páska er oftast nefnd dymbilvika eða kyrravika á íslensku þá er mikið um að vera í helgihaldi kirkjunnar. Þessa daga tökum við okkur frí frá hefðbundinni dagskrá, eldri borgarastarfið og djúpslökunar stundin falla niður þessa viku.

By |2017-04-10T10:59:18+00:0010. apríl 2017 | 10:59|

Helgihald Fella- og Hólakirkju yfir páskana

Að venju er mikið um að vera í kirkjunni dagana fyrir páska. Á  Skírdagur  13.apríl  er Fermingarmessa kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson  og sr. Kristin Ágúst Friðfinnson þjóna og ferma. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista og Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Föstudagurinn langi  14.apríl Guðsþjónusta kl. 11:00.  Prestur sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Píslarsagan [...]

By |2017-04-10T10:47:26+00:0010. apríl 2017 | 10:47|

Helgihald um bænadaga og páska

Skírdagur  13.apríl Fermingarmessa kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson  og sr. Kristin Ágúst Friðfinnson þjóna og ferma. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista.  Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Föstudagurinn langi  14.apríl Guðsþjónusta kl. 11 Prestur sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Píslarsagan lesin. Kór kirkjunnar flytur tónlist sem tengist föstudeginum langa. Inga Backman syngur einsöng. [...]

By |2017-04-04T10:49:05+00:004. apríl 2017 | 10:49|

Pálmasunnudag 9. apríl. Fermingamessa kl. 11:00

Pálmasunnudag, 9. apríl. Fermingamessa kl. 11:00 Sr. Guðmundur Karl Ágústsson og Kristín Kristjánsdóttir djákni sjá um ferminguna. Kór kirkjunnar syngur og organisti er Arnhildar Valgarðsdóttir. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Sunnudagaskóli á sama tíma. Verið velkomin

By |2017-04-04T10:34:34+00:004. apríl 2017 | 10:34|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 4.apríl Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson

Kyrrðastund kl. 12:00  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson  sér um stundina ásamt Kristínu djákna og Arnhildi organista.   Súpa og brauð eftir stundina. Það verður mikið stuð á okkur í dag dr. Sigurjón Árni er gestur okkar og ásamt vini sínum ætlar hann að spila á saxafónin skemmtileg lög og segja okkur sögur. Það verður jazzað [...]

By |2017-04-04T10:23:55+00:002. apríl 2017 | 12:20|
Go to Top