Fréttir

Sameining Fella- og Hólabrekkusókna

Sameining Fella- og Hólabrekkusókna Á kirkjuþingi 2016 var samþykkt sameining Fella- og Hólabrekkusókna í Reykjavíkurprófastdæmi eystra í eina sókn, Fella-og Hólasókn. Öðlast þessi sameining gildi 30. nóvember 2016. Á sama tíma sameinast Fellaprestakall og Hólabrekkuprestakall í eitt prestakall, Fella-og Hólaprestakall. Í samræmi við þetta er hér með boðað til stofnfundar hinnar sameinuðu sóknar þriðjudaginn 13. [...]

By |2016-12-09T14:32:15+00:009. desember 2016 | 14:32|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 6. desember

Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna. Við ætlum að hafa það jólalegt og skemmtilegt. Það verður spilað bingó og fullt af jólalegum vinningum. Jólalegt kaffi kl. 15 og fyrirbænastund í lokinn. Verið velkomin

By |2017-02-02T13:01:55+00:004. desember 2016 | 19:05|

Að komast af þrátt fyrir jólin

Fimmtudaginn 8. desember kl. 20 heldur sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson stuttan fyrirlestur með myndum um hina hliðina á jólahaldinu. Því miður finna margir til kvíða og verða áhyggjufullir um jólin. Gömul sár opnast og endurminningar um hræðilega hluti vakna hjá fleirum en okkur grunar. Enn aðrir finna fyrir vanmætti vegna fátæktar. Hjá öllu þessu fólki [...]

By |2016-11-30T10:47:07+00:0030. nóvember 2016 | 10:46|

Guðsþjónusta, djassmessa og sunnudagaskóli sunnudaginn 4. desember kl. 11

Jassmessa þar sem Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar og leikur á saxófón Þorgrímur Þorsteinsson á gítar og Ingvi Rafn Björgvinsson á bassa.Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson leiðir messuna. Kaffisopi eftir messu. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Pétur og Ásta ætla að föndra með börnunum jólaföndur. Verið velkomin 

By |2017-02-02T13:01:55+00:0029. nóvember 2016 | 10:30|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 29. nóvember

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 29. nóvember | Fella-og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Félagstarf eldri borgara kl. 13.00. Níels Árni Lund rithöfundur les upp úr bók sinni Af heimaslóðum og kynnir bókina. Sögusvið bókar er Melrakkasléttan. Bókin er full af þjóðlegum fróðleik af mannlífi fólks við ysta haf. Kaffiborð kl. [...]

By |2017-02-02T13:01:55+00:0028. nóvember 2016 | 10:12|

Aðventukvöld Fella-og Hólakirkju Sunnudaginn 27. nóv kl. 20

Aðventukvöld Fella- og Hólakirkju Sunnudaginn 27. nóv kl. 20 Ljúf og notarlega stund á aðventu Tónlist flytja kór Fella-og barnakórinn Litróf Einsöngvarar. Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Svanlaug Jóhannsdóttir og Hulda Jónsdóttir Fiðluleikur: Gréta Salóme Milli kl 19.45 og 20.00 leika Reynir Þormar á saxofón og Arnhildur á píanó, létt jólalög. Hugvekju flytur Sveinn H. Skúlason Veitingar [...]

By |2017-02-02T13:01:55+00:0022. nóvember 2016 | 11:33|

Sunnudagaskóli sunnudaginn 27.nóv kl. 11

Það verður líf og fjör í sunnudagaskólanum næsta sunnudag. Pétur, Íris og Ásta taka vel á móti ykkur ásamt sr. Guðmundir Karli Ágústsyni.  Viktoríu kíkir í heimsókn og hún er alltaf skemmtileg. Hlökkum til að sjá ykkur.

By |2016-11-22T11:32:21+00:0022. nóvember 2016 | 11:31|

Aðventukvöld Fella- og Hólakirkju sunnudaginn 27. nóv. kl. 20

Aðventukvöld Fella- og Hólakirkju Sunnudaginn 27. nóv kl. 20 Ljúf og notarlega stund á aðventu Tónlist flytja kór Fella-og barnakórinn Litróf Einsöngvarar. Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Svanlaug Jóhannsdóttir og Hulda Jónsdóttir Fiðluleikur: Gréta Salóme Hugvekju flytur Sveinn H. Skúlason Veitingar í lok kvöldsins

By |2017-02-02T13:01:55+00:0022. nóvember 2016 | 11:26|
Go to Top