Fréttir

Árlegt menningarkvöld Fella-og Hólakirkju

Árlegt menningakvöld Fella- og Hólakirkju var haldið í gær og tókst frábærlega, margir listamenn komu fram sem sungu eða spiluðu á hljóðfæri. Að lokum var boðið upp á kaffi og konfekt. Takk kærlega allir þeir listamenn sem komu fram og gerðu kvöldið eftirminnilegt. Hér koma nokkrar myndir af kvöldinu.   

By |2017-02-02T13:01:55+00:0019. október 2016 | 14:31|

Guðsþjónusta sunnudaginn 23. október kl. 11 sem er 22. sunnudagur eftir þrenningarhátíð

Guðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar og predikar. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Kirkjukórinn syngur ásamt söngnemum úr söngskóla Reykjavíkur. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Molasopi og djús eftir stundina. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Péturs, Írisar og Ástu. Verið hjartanlega velkomin.

By |2017-02-02T13:01:56+00:0019. október 2016 | 11:22|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 18. okt

Kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina á vægu verði. Gestur okkar í dag er Þórdís Gísladóttir hún ræðir við okkur um heilsueflingu. Fastir liðir á sínum stað. Eigum góða samveru saman. Hlökkum til að sjá ykkur

By |2017-02-02T13:01:56+00:0016. október 2016 | 21:28|

Bleik guðsþjónusta sunnudaginn 16. október kl. 11

Bleik guðsþjónusta verður sunnudaginn 16. október kl. 11. Í messunni verður sérstaklega minnst átaks Krabbameinsfélagsins, Bleiku slaufunnar og beðið fyrir krabbameinssjúkum og fjölskyldum þeirra. Prestur Kristinn Ágúst Friðfinnsson leiðir stundina og blessar ásamt  Kristínu Kristjánsdóttur djákna. Konur úr sóknanefndum lesa ritningaorð. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Jón Magnús Jónsson frá Reykjum Mosfellsbæ syngur [...]

By |2017-02-02T13:01:56+00:0011. október 2016 | 17:08|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 11. október

Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð eftir stundina. Hefðbundin dagskrá. Við höldum áfram með framhaldssöguna okkar, spilum, prjónum og eigum góða samveru saman. Við leikum okkur og spilum botsía. Hlökkum til að sjá ykkur. Allir velkomnir.

By |2017-02-02T13:01:56+00:0010. október 2016 | 08:35|

Messa sunnudaginn 9. október kl.11

Messa sunnudaginn 9. október kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson predikar og þjónar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Umsjón Pétur og félagar. Kaffisopi eftir stundina og djús. Verið velkomin

By |2016-10-05T10:20:51+00:005. október 2016 | 10:20|

Púttmót eldri borgara í gær.

Við tókum undir okkur kennslustofuna í kirkjunni í gær og útbjuggum 7.holu púttvöll við frábærar undirtektir eldri borgaranna. Ákveðið hefur verið að gera þennan viðburð árlegan og kalla hann "Fella- og Hólakirkju Open "  að golfara sið. Að sjálfsögðu voru verðlaun fyrir besta skorið og urðu Sigursteinna og Palli efst. Október mánuður er tileinkaður hreyfingu [...]

By |2017-02-02T13:01:56+00:005. október 2016 | 10:15|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 4. október

Kyrrðarstund kl. 12. Kjötsúpa að hætti Jóhönnu Freyju og Kristínar eftir stundina. Við ætlum að leika okkur og hafa púttkeppni, hlusta á ferðasögu. Spilum, prjónum og eigum góða samveru stund saman. Allir velkomnir

By |2017-02-02T13:01:57+00:002. október 2016 | 21:22|

Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 2. október kl. 11

Það verður líf og fjör á sunnudaginn í fjölskyldumessunni. Pétur og félagar hafa umsjón með stundinni ásamt sr. Kristni Ágústi Friðfinnssyni. Litrófið syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur. Heitt kaffi eftir stundina og djús fyrir börnin. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eigum góða og skemmtilega stund saman. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir

By |2017-02-02T13:01:57+00:0027. september 2016 | 11:40|
Go to Top