Gospel guðsþjónusta sunnudaginn 22. maí kl. 20:00
Gospel - guðsþjónusta verður sunnudaginn 22. maí kl. 20:00. Kristín Kristjánsdóttir djákni leiðir stundina. Kirkjukórinn leiðir sönginn undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
Gospel - guðsþjónusta verður sunnudaginn 22. maí kl. 20:00. Kristín Kristjánsdóttir djákni leiðir stundina. Kirkjukórinn leiðir sönginn undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista.
Á morgun æltum við að breyta aðeins til og hittast á Gamla kaffihúsið Drafnarfelli. Fáum okkur kaffi og spjöllum saman með börnunum. Hlökkum til að sjá ykkur Jóhanna Freyja og Kristín[/fusion_text]
Á þriðjudaginn förum við í Borgarfjörðinn. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 10 um morguninn. Við eigum heimboð að bænum Kolsstöðum við Hvítársíðu. Skoðum listaverkin hans Páls í Húsafelli. Heimsækjum Geitabúið á Háfelli og endum daginn í kvöldverði á hótel Hafnafjalli. Fullt er í ferðina. Hlökkum til að sjá ykkur
Guðsþjónusta kl. 11 á Hvítasunnudegi. Prestur Guðmundur Karl Ágústsson. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Rúna Vala Þorgrímsdóttir söngnemi syngur einsöng. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina Allir velkomnir
Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð í safnaðarsalnum á vægu verði. Við ætlum að leika okkur í dag og lærum að spila Botsía. Hefðbundið starf að öðruleyti. Rétt fyrir kaffi fáum við leikskólabörn frá leikskólanum Hraunborg í heimsókn. Þau ætla að syngja fyrir okkur. Hlökkum til að sjá ykkur. Allir velkomnir.
Næsta sunnudag er guðsþjónusta kl. 11. Prestur Svavar Stefánsson þjónar fyrir altari. Oddfellow kórinn Hallvegarsynir syngja undir stjórn Jón Karls Einarssonar og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Þór Breiðfjörð syngur einsöng. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Molasopi eftir stundina. Verið velkomin
Samvera eldri borgara þriðjudaginn 3 maí. Sr. Svavar sér um dagskrá dagsins. Börn frá leikskólanum Hraunborg koma í heimsókn um kaffileytið. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Guðsþjónusta sunnudaginn 1. maí kl. 11 Prestur Guðmundur Karl Ágústsson. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Inga Backmann syngur Maístjörnuna. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Kaffisopi eftir stundina Verið velkomin
Aðalfundur Fella- og Hólabrekkusókna verður haldinn í safnaðarsal Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 10. maí nk og hefst hann kl 19.30. Venjuleg aðalfundarstöf. Á fundinum liggur fyrir tillaga til ákvörðunar um sameiningu Fella- og Hólabrekkusókna. Tillöguna má kynna sér hér fyrir neðan. Íbúar í Efra Breiðholti, þ.e. Fella- og Hólahverfum eru hvattir til að mæta á [...]
Vorferð eldri borgarastarfsins verður farinn þriðjudaginn 17. maí. Að þessu sinni liggur leiðin í Borgarfjörð þar sem við eigum heimboð að bænum Kolsstöðum við Hvítársíðu. Við skoðum svæðið og snæðum hádegisverð. Að því loknu verður ekið að Húsafelli þar sem við fáum leiðsögn um listaverkin hans Páls og njótum stórbrotinar náttúru svæðisins. Þaðan liggur leið okkar [...]