Fréttir

Eldri borgarastarf Þriðjudaginn 29. september

Kyrrðarstund kl. 12.00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina síðan er árleg haustlitaferð út fyrir borgarmörkin. Lagt af stað frá kirkjunni kl. 13.00. Uppselt er í ferðina. Hlökkum til að sjá ykkur.

By |2016-03-21T21:08:07+00:0028. september 2015 | 17:41|

Guðsþjónusta sunnudaginn 27. september kl. 11

Svavar Stéfansson predikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Péturs, Ástu og Guðlaugar. Kaffisopi eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin.

By |2016-03-21T21:08:07+00:0022. september 2015 | 11:30|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 22.september

Eldri borgarastarfið þriðjudaginn 22. september hefst með kyrrðarstund kl. 12 og léttum hádegisverði eftir stundina. Prjónum, spilum og spjöllum. Púttkeppni og ýmislegt annað skemmtilegt. Hlökkum til að sjá ykkur.

By |2016-03-21T21:08:07+00:0020. september 2015 | 14:44|

Guðsþjónusta kl. 11. Sunnudaginn 20. september Söfnunar guðsþjónusta

Svavar Stefansson predikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Péturs Ragnhildarsonar. Eftir stundina er boðið upp á súpu í safnaðarheimilinu til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar. Frjáls framlög að eigin ósk og ágóðinn rennur til þessa mikilvæga verkefnis. Verið hjartanlega velkomin.  

By |2016-03-21T21:08:07+00:0015. september 2015 | 10:20|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 15.september

Þriðjudaginn 15.september er hefðbundið starf, kyrrðarstund kl. 12 síðan súpa og brauð. Gestur dagsins er Erna Indriðadóttir sem er stofnandi vefsíðunar Lifðu núna. Erna stofnaði síðuna í minningu móður sinnar.  Markmiðið er  að gera líf og störf  þeirra landsmanna sem eru komnir um og yfir miðjan aldur sýnilegri. Skemmtilegt og fróðlegt erindi. Eigum góðan og skemmtilegan [...]

By |2016-03-21T21:08:07+00:0012. september 2015 | 10:28|

Á morgun hefjast foreldramorgnar

Foreldramorgnar í Fella - og Hólakirkju alla fimmtudagsmorgna frá kl. 10 - 12 í safnaðarheimili kirkjunnar. Gott samfélag og notarlegar stundir. Jóhanna Freyja og Kristín hafa umsjón með starfinu. Hlökkum til að sjá ykkur.

By |2016-03-21T21:08:07+00:009. september 2015 | 11:48|
Go to Top