Messa 21. janúar
Næsta sunnudag er messa kl. 17 í Fella- og Hólakirkju. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari og prédikar. Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða tónlistina undir stjórn Arnhildar organista. Kaffisopi eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin.