Fréttir

Kvöldguðsþjónusta sunnudaginn 26. júní kl. 20

Kvöldguðsþjónusta verður í kirkjunni n.k. sunnudagskvöld, 26. júní kl. 20. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Organisti og söngstjóri Guðný Einarsdóttir. Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng. Sunnudagurinn 26. júní er 1. sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Guðspjall dagsins er úr Lúkasar-guðspjalli 12. kafla versin 13-21. Hugleiðingarefni dagsins er auðsöfnun og misskipting lífsins gæða. Veitir auðlegð og sóun sálarheill, [...]

By |2011-06-22T11:01:46+00:0022. júní 2011 | 11:01|

Tónleikar miðvikudag 22. júní kl. 20

Síðustu tónleikar Sumartóna í Elliðaárdal verða miðvikudagskvöldið 22. júní kl. 20. Þeir verða af léttara taginu en þá mun The Sandström/Gunnarsson Duokoma fram. Dúóið er skipað þeim Leifi Gunnarssyni á kontrabassa og Viktor Sandström á gítar. Á efnisskrá kvöldsins eru þekktir jazz-standardar, sænsk og íslensk þjóðlög útsett með jazz-ívafi og frumsamin lög þeirra félaga í dúóinu. [...]

By |2011-06-19T07:56:32+00:0019. júní 2011 | 07:56|

Göngumessa 19. júní kl 20.00

Sunnudagur 19.júni Þriðja göngumessa í samstarfi kirknanna í Breiðholti verður næsta sunnudag. Gengið verður frá Breiðholtskirkju klukkan 19 að Fella- og Hólakirkju þar sem guðsþjónusta hefst þar kl.20. Sr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Boðið verður upp á kaffi eftir stundina í safnaðarheimili [...]

By |2011-06-16T10:33:42+00:0016. júní 2011 | 10:33|

Hvítasunnudagur 12.júní

Guðsþjónusta á Hvítasunnudag kl.11. Prestur Dr. Einar Sigurbjörnsson. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið öll innilega velkomin.

By |2011-06-07T09:12:16+00:007. júní 2011 | 09:12|

Sumartónar í Elliðaárdal

Miðvikudaginn 8. júní kl. 20 mun tónleikaröðin Sumartónar í Elliðaárdal hefja göngu sína með tónleikum Kórs Fella- og Hólakirkju. Kórinn flytur Aesop´s Fables eftir Bob Chilcott við undirleik Guðríðar St. Sigurðardóttur. Einnig munu einsöngvarar úr röðum kórfélaga flytja þekktar, ítalskar aríur og íslensk einsöngslög. Að lokum mun kórinn endurtaka hluta af minningartónleikum um hjónin Magneu [...]

By |2011-06-05T15:40:56+00:005. júní 2011 | 15:40|

sunnudagurinn 5.júní

Sunnudaginn 5. júní verður gengið frá Seljakirkju kl. 19:00 til kvöldmessu í Breiðholtskirkju sem byrjar kl. 20:00.  Ekið verður með göngufólk aftur að Seljakirkju þegar allir hafa þegið hressingu eftir messuna. Gangan er tilvalið tækifæri til að sameina góða hreyfingu, andlega næringu og góðan félagsskap.

By |2011-06-01T10:47:39+00:001. júní 2011 | 10:47|

Uppstigningardagur- dagur eldri borgara

Guðsþjónusta kl.14. Þórey Dögg Jónsdóttir nývígður djákni Fella- og Hólakirkju prédikar en sr. Svavar Stefánsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni þjóna fyrir altari. Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar.Organisti er Guðný Einarsdóttir. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í safnaðarheimili kirkjunnar. Kirkjuverðir og meðhjálparar eru Kristín Ingólfsdóttir og Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Allir innilega velkomnir.

By |2011-06-01T10:43:12+00:001. júní 2011 | 10:43|

Sumartónar í Elliðaárdal

Sumartónar í Elliðaárdal  er röð vandaðra tónleika sem haldnir verða í Fella- og Hólakirkju á miðvikudagskvöldum kl. 20:00 frá 8. júní til 22. júní 2011 og er þetta í þriðja sinn sem slík tónleikaröð er haldin í kirkjunni. Lesið meira hér.

By |2011-05-30T11:31:53+00:0030. maí 2011 | 11:31|

GÖNGUMESSUR Í BREIÐHOLTI:)

Nú í byrjun sumars verður boðið upp á gönguferðir um Breiðholtið. Það eru kirkjurnar í hverfinu sem hafa frumkvæðið að þessum gönguferðum, sem eiga það allar sameiginlegt að byrja og enda við kirkju. Þetta er þriðja árið í röð sem boðið er upp á slíkar göngur og má með sanni segja að framtakið hafi fengið [...]

By |2011-05-24T10:11:49+00:0024. maí 2011 | 10:11|

Ferðalagi frestað !

Ferðalagi kirkjustarfs eldri borgara hefur verið frestað vegna gossins í Grímsvötnum. Kyrrðarstund verður í kirkjunni kl.12 og opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar. Nánari upplýsingar í s: 557 3280

By |2011-05-23T11:30:59+00:0023. maí 2011 | 11:30|
Go to Top