Fréttir

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11 í umsjá Guðnýjar Einarsdóttir, Þóreyjar Daggar Jónsdóttur og Diljáar Sigursveinsdóttir. Söngur og dans með litlu krílunum. Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá við allra hæfi. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2011-03-31T10:12:33+00:0031. mars 2011 | 10:12|

Guðsþjónusta kl.11 sunnudaginn 27.mars

Guðsþjónusta kl.11. Sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Á sama tíma er sunnudagaskóli í umsjá Þóru Sigurðardóttur og Daríu Rudkovu. Þar verður föndrað páskaföndur. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin.

By |2011-03-22T10:37:25+00:0022. mars 2011 | 10:37|

Tónleikar í Fella- og Hólakirkju 23.mars kl.20

MISSA VOTIVA eftir Jan Dismas Zelenka, 23. mars 2011 í Fella- og Hólakirkju Glæsilegt barokkverk frumflutt á Íslandi Söngsveitin Fílharmónía flytur á vortónleikum sínum barokkverkið Missa votiva, eftir Jan Dismas Zelenka, með Bachsveitinni í Skálholti. Einsöngvarar á tónleikunum eru Marta Guðrún Halldórsdóttir, Jóhanna Ósk Valsdóttir, Gissur Páll Gissurarson og Ágúst Ólafsson . Stjórnandi er Magnús [...]

By |2011-03-21T15:45:31+00:0021. mars 2011 | 15:45|

Vinadagur- Fjölskylduguðsþjónusta kl.11 sunnudaginn 20.mars

Vinir okkar úr Breiðholtskirkju koma í heimsókn.  Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson, Þórey Dögg Jónsdóttir sér um Biblíufræðslu. Organisti Guðný Einarsdóttir. Listasmiðjan Litróf syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Bjarki Rafn Andrésson leikur eftirspil á orgel. Mikill söngur og skemmtileg dagskrá sem höfðar til allra [...]

By |2011-03-15T10:39:27+00:0015. mars 2011 | 10:39|

Sunnudagurinn 13.mars

Guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Þorvaldur Halldórsson syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. Efni dagsins er ,,Búum til nælur". Kl. 14 verður haldin guðsþjónusta á vegum Dýrfirðingafélagsins. Prestur er sr. Svavar Stefánsson. Organisti er Guðbjörg Leifsdóttir. Á eftir verður kaffisala í safnaðarheimili kirkjunnar [...]

By |2011-03-08T10:00:58+00:008. mars 2011 | 10:00|

Krílasálmar – nýtt námskeið hefst mánudaginn 7. mars

Krílasálmar eru frábær tónlistarnámskeið í kirkjunni fyrir ungbörn á fyrsta ári og foreldra þeirra. Mánudaginn 7. mars hefst síðasta námskeið vetrarins og eru enn örfá pláss laus. Kennt er á mánudögum kl. 10:30 og er námskeiðið sex skipti. Kennarar eru Diljá Sigursveinsdóttir tónlistarkennari og Guðný Einarsdóttir organisti. Verð fyrir sex skipti er 3000 kr. Smellið hér [...]

By |2011-03-04T15:44:59+00:004. mars 2011 | 15:44|

Æskulýðsdagurinn 6.mars

Næsta sunnudag 6.mars verður fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Íris Andrésdóttir leikur forspil á orgel. Þórey Dögg Jónsdóttir flytur  hugleiðingu. Yngri hópur listasmiðjunnar Litrófs syngur undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Undirleik annast Guðný Einarsdóttir. Kl. 20 verður léttmessa í kirkjunni. Prestar kirkjunnar leiða stundina. Fermingarbörn og unglingar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar taka þátt í stundinni. [...]

By |2011-03-03T09:55:11+00:003. mars 2011 | 09:55|

Minningartónleikar 1. mars

Kór Fella- og Hólakirkju gengst fyrir minningartónleikum um biskupshjónin Magneu Þorkelsdóttur og Sigurbjörn Einarsson  þriðjudaginn 1. mars í tilefni af því að  á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu þeirra. Magnea Þorkelsdóttir hefði orðið 100 ára þennan dag en hún fæddist 1. mars 1911. Sigurbjörn Einarsson fæddist 30. júní 1911. […]

By |2017-02-02T13:02:14+00:0025. febrúar 2011 | 11:41|

Messa kl.11 sunnudaginn 27.febrúar

Messa kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóru Sigurðardóttur. ,,Búningadagur í sunnudagaskólanum" Allir krakkar mega koma í búningum. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið innilega velkomin í Fella- og Hólakirkju.

By |2011-02-22T09:41:33+00:0022. febrúar 2011 | 09:41|

Taize-messa á Konudaginn 20.febrúar kl.11

Taize messa verður á Konudaginn, 20.febrúar kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Hildur Svavarsdóttir spilar með kórnum á flautu. Sunnudagaskóli verður á sama tíma í umsjá Þóreyjar D Jónsdóttur og Daríu Rudkova.,,Búum til gjafir á Konudaginn". Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Flottir karlmenn baka vöfflur [...]

By |2011-02-15T11:32:15+00:0015. febrúar 2011 | 11:32|
Go to Top