Fréttir

Helgihald um bænadaga og páska

Skírdagur 29. mars. Fermingarmessa kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson  og sr. Jón Ómar Gunnarsson þjóna. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista og Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Föstudagurinn langi 30. mars.   Guðsþjónusta kl. 11:00.  Prestur sr. Jón Ómar Gunnarsson. Píslarsagan lesin. Kór kirkjunnar leiðir almennan söng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur.  Páskadagur - [...]

By |2018-03-26T10:55:41+00:0026. mars 2018 | 10:55|

Hátíðarmessa sunnudaginn 25. mars kl. 14 í tilefni 30 ára vígsluafmæli Fella-og Hólakirkju

Hátíðarmessa kl. 14:00 í tilefni  30 ára vígsluafmæli Fella- og Hólakirkju. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar, prestar og djákni kirkjunnar þjóna fyrir altari. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Kórinn flytur verk eftir Vivaldi og Caccini. Inga Backman og Kristín R. Sigurðardóttir syngja einsöng. Eftir messu er [...]

By |2018-03-20T09:57:35+00:0020. mars 2018 | 09:47|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 20. mars

Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12. Síðan er boðið upp á súpu og brauð í safnaðarsalum á vægu verði. Það verður konu og karladagur, Magga frá versluninni Logy kemur með búðina sína og það verður heldur betur gaman. Guðmundur Karl og Jón Ómar bjóða körlum sem vilja í óvissuferð. Hefðbundið starf að öðruleyti. Við spilum, spjöllum [...]

By |2018-03-18T15:52:53+00:0018. mars 2018 | 15:52|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 13. mars

Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina. Gestur okkar er Rósa Ólöf Ólafíudóttir rithöfundur en hún les úr bók sinni. Við eigum góða samveru saman, spilum, prjónum og spjöllum saman.  Verið velkomin.

By |2018-03-11T20:58:48+00:0011. mars 2018 | 20:58|

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli sunnudaginn 11 mars kl. 11:00 Dýrfirðingamessa kl. 14:00

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00 Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Matthíasar Harðarsonar organista. Dýrfirðingamessa kl. 14:00 Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar, Bjarni Guðmundsson flytur hugvekju. Kór Dýrfirðinga leiðir messusöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur organista. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir Verið velkomin 

By |2018-03-06T14:59:21+00:006. mars 2018 | 14:59|

Helgihald á æskulýðsdegi þjóðkirkjunnar sunnudaginn 4. mars

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar ásamt Pétri, Ástu og auðvitað Viktoríu sem hefur alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja. Arnhildur Valgarðsdóttir organisti sér um tónlistina. Æskulýðsguðsþjónusta kl. 20. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar. Íris Andrésdóttir spilar og leiðir söng.  Tónlistaratriði frá dúetnum Hugo the band. Fermingabörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðin [...]

By |2018-02-28T11:51:07+00:0028. febrúar 2018 | 11:34|

Fyrirbæn og djúpslökun alla þriðjudaga frá kl. 17:30 – 18:30 Allir velkomnir

Kristín djákni byrjar stundina með fyrirbæn, síðan tekur Edit jógakennari við og leiðir hópinn inn í kyrrðina og hvíldina þar sem andinn vex og umvefur.  Hægt er að skrifa bænir í bænabók áður en stundin hefst. Gott að koma í hlýrri peysu og hlýjum sokkum. Þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og [...]

By |2018-03-20T09:56:35+00:0026. febrúar 2018 | 09:37|
Go to Top