Foreldramorgnar byrja á morgun
Foreldramorgnar byrja á morgun, allir foreldrar velkomnir með krílin sín. Kaffi og meðlæti í boði. Hlökkum til að sjá ykkur
Foreldramorgnar byrja á morgun, allir foreldrar velkomnir með krílin sín. Kaffi og meðlæti í boði. Hlökkum til að sjá ykkur
Messa sunnudaginn 10. september kl. 11:00. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Pétur og Ásta taka á móti börnunum í sunnudagaskólann á sama tíma. Viktoría kemur í heimsókn og það verður líf og fjör. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir Kaffi og djús eftir stundina Verið velkomin
Barna-og æskulýðsstarf Fella-og Hólakirkju hefst fimmtudaginn 7. september n.k. Þá er börnum í 5.-7. bekk boðið að koma í Leikjafjör kl. 17-18, umsjón með Leikjafjörinu hafa Pétur Ragnhildarsson og Ásta G. Guðmundsdóttir. Unglingadeildin fyrir 8.-9. bekk hefst sama dag kl. 20-21:30 og hafa Pétur, Ásta, Kristín Gyða og Ída Hlín umsjón með starfinu. Síðan verður [...]
Sunnudaginn 10. september verður messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar ásamt Jóhönnu F. Björnsdóttur, meðhjálpara. Kór kirkjunnar leiðir almennan söng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Pétur, Ásta og Kristín Gyða verða með sunnudagaskólann að venju!
Þessir tímar henta öllum og er algjörlega áreynslulausar. Þorgerður leiðir okkur í slökun og hugleiðslu sem þarfnast engrar sérþekkingar eða reynslu og Kristín djákni leiðir okkur inn í fyrirbæn. Þetta eru dásamlegar stundir sem allir ættu að geta nýtt sér til að losa um þá streitu og spennu sem fylgir hraða og annríki nútímans. [...]
Eldri borgarastarf kirkjunnar byrjar á morgun með kyrrðarstund kl. 12:00 Okkur hlakkar til að sjá ykkur eftir langt og gott sumarfrí.
Sunnudaginn 3.september hefst barnastarfið aftur eftir sumarfrí. Það verður mikil hátíð, söngur og gleði og ekki skemmir það fyrir að Viktoría kemur í heimsókn. Ásta og félagar í eru orðnin spennt að taka á móti börnunum í sunndudagaskólann. Sr. Jón Ómar Gunnarsson hefur umsjón með stundinni. Verið öll velkomin, kaffi og djús eftir stundina.
Innsetningarmessan sunnudaginn 27. ágúst kl. 11:00 þá mun sr. Gísli Jónasson, prófastur í Reykjarvíkurprófastsdæmi eystra setja sr. Jón Ómar Gunnarsson inn í embætti prests í Fella-og Hólakirkju. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir og Inga Backmann syngja einsöng. Reynir Þormar Þórisson spilar á saxafón. [...]
Sunnudaginn 20. ágúst verður helgistund kl. 20:00. Kristín Kristjánsdóttir djákni sér um stundina ásamt Arnhildi Valgarðsdóttur organista. Ágústa Dómhildur spilar á fiðlu og Hákon Hákonarson spilar á gítar. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið velkomin Kaffisopi eftir stundina
Sunnudaginn 13. ágúst verður helgistund kl. 20:00. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústson. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Verið velkomin Kaffisopi eftir stundina