Fréttir

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 21. febrúar

Kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð á vægu verði í safnaðarsalnum eftir stundina. Við fáum góðan gest í heimsókn sem veit allt um salt. Salt er ekki bara salt! Eigum góða stund saman, prjónum, spjöllum , spilum og kíkjum í blöðin. Verið hjartanlega velkomin, við tökum hlýlega á [...]

By |2017-02-19T14:43:33+00:0019. febrúar 2017 | 14:43|

Guðsþjónusta sunnudaginn 19. febrúar kl. 11 Konudagur

Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11:00. Kristín Kristjánsdóttir djákni og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni þjóna og flytja saman hugvekju. Kór kirkjunnar syngur lög tileinkuð konum. Organisti Hilmar Örn Agnarsson. Reynir Þormar spilar á saxafón. Í tilefni dagsins bjóða karlar upp á nýbakaðar vöfflur með rjóma eftir stundina. Verið velkomin 

By |2017-02-15T16:50:21+00:0015. febrúar 2017 | 16:50|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 14. febrúar

Kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Súpa og brauð eftir stundina á vægu verði. kl. 13:00 kemur sr. Þórhallur Heimisson til okkar með áhugaverðan fyrirlestur um um Indland og Butan. Við spilum og spjöllum saman og eigum góða samveru. Allir velkomnir

By |2017-02-10T16:09:08+00:0010. febrúar 2017 | 16:09|

Vináttumessa sunnudaginn 12. febrúar kl. 11:00

Vináttumessa kl. 11:00 Sungið um ástina og vináttuna. Særún Harðardótir og Jón Magnús Jónsson syngja einsöng. Sr. Kristin Ágúst Friðfinnsson þjónar og predikar. Bjóðið vini með í vináttumessu. Verið hjartanlega velkomin 

By |2017-02-08T11:18:43+00:008. febrúar 2017 | 11:18|

Eldri borgarar

Eldri borgarastarfið þriðjdaginn 7. febrúar. Við byrjum með Kyrrðarstund kl.12 síðan er boðið upp á súpu og brauð í safnaðarsalnum á vægu verði. Gestur okkar er Jón K Guðbergsson sem spjallar um heima og geima. Það er alltaf gaman hjá okkur á þriðjudögum. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest við tökum hlýlega á móti [...]

By |2017-02-05T13:46:23+00:005. febrúar 2017 | 13:46|

Sunnudaginn 5. febrúar er fjölskyldumessa kl:11

Fjölskyldumessa kl: 11 Prestur er sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Börnin í Listasmiðjunni Litróf syngja. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir  og auðvitað verður mikið sungið og kirkjubrúðurnar koma í heimsókn. Kaffisopi og djús eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin

By |2017-02-02T13:01:52+00:0031. janúar 2017 | 11:32|

Embætti prests í Fella- og Hólaprestakalli auglýst laust til umsóknar

Embætti prests í Fella- og Hólaprestakalli auglýst laust til umsóknar Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti prests í Fella- og Hólaprestakalli Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Skipað er í embættið frá 1. apríl nk. til fimm ára. Nánari upplýsingar um embættið er að finna á síðunni laus störf, hér er tenging á laus störf. Þar er einnig [...]

By |2017-02-02T13:01:52+00:0030. janúar 2017 | 20:47|
Go to Top