Fréttir

Félagsstarf eldri borgara þriðjdaginn 31.janúar

Kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar Kristjánsdóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Súpa og brauð á vægu verði eftir stundina kl. 13:00 fáum við áhugavert erindi um karlmenn í fæðingarhjálp á 19. öld. Erla Doris flytur. Hefðbundið starf að öðruleyti. Spilum, spjöllum og höfum það skemmtilegt saman. Verið velkomin.

By |2017-02-02T13:01:52+00:0029. janúar 2017 | 12:25|

Karla kaffi

Við þökkum fyrir frábæra þátttöku í karlakaffi í morgun, 25 karlar komu í kaffispjall og vínarbrauð og áttu góða stund saman. Við endurtökum síðan leikin að mánuði liðnum eða síðasta föstudaginn í febrúar.  

By |2017-01-29T12:29:37+00:0027. janúar 2017 | 16:17|

Guðsþjónusta sunnudaginn 29. janúar kl. 11

Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson predikar og þjónar. Kór kirkjunnar syngur. Assa Davíðsdóttir leikur á fiðlu kafla úr konsert eftir Rieding, Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Péturs Ragnhildarsonar. Það er alltaf líf og fjör í sunnudagaskólanum. Kaffi og djús eftir stundina. Verið velkomin

By |2017-01-29T12:30:42+00:0024. janúar 2017 | 11:30|

Félagsstarf eldri borgara þriðjudaginn 24. janúar

Félagsstarf eldri borgara Þriðjudaginn 24. janúar Þorranum fagnað Við byrjum með kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.00 og færum okkur síðan inn í safnaðarsal þar sem þorramatur bíður okkar. Þorvaldur kemur með nikkuna og við synjum og skemmtum okkur saman. Verð 1500. kr. Hlökkum til að sjá ykkur        

By |2017-02-02T13:01:52+00:0019. janúar 2017 | 13:01|

Guðsþjónusta sunnudaginn 22.janúar kl. 11

Guðsþjónusta kl. 11:00 í Fella - og Hólakirkju. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson predikar og þjónar. Kór kirkjunnar syngur og organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Karen Erla Ketilsdóttir ungur þv.flautunemandi spilar Menúett eftir. J.S.Bach . María Cederborg kennarinn hennar spilar með. Sunnudagaskólnn er á sama tíma kl. 11. Umsjón hefur Pétur Ragnhildarson. Kaffi og djús eftir stundina. Verið hjartanlega [...]

By |2017-02-02T13:01:52+00:0018. janúar 2017 | 11:12|

Félagsstarf eldri borgara “ karlakaffi“

"Karla kaffi" við ætlum að bjóða karlmönnum sem eru 67 ára og eldri í morgunkaffi frá kl 10-11:30. Hressandikaffisopi og kruðerí með, spjall og samvera. Hin landsfrægi Ómar Ragnarsson kemur í spjall og kaffisopa Þessi stund er kjörin fyrir þá sem eru hættir að vinna og hafa gaman að því að spjalla og félagsskap Hlökkum [...]

By |2017-02-02T13:01:52+00:0017. janúar 2017 | 11:34|

Guðsþjónusta sunnudaginn 15.janúar kl. 11.00

Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson þjónar og predikar. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng. Organisti Arnhildur Valgarðsdóttir. Sunnudagaskólinn á sama tíma. Kaffsopi eftir stundina. Verið velkomin

By |2017-01-10T11:34:36+00:0010. janúar 2017 | 11:34|
Go to Top