Fréttir

Eldri borgarastarfið hefst á morgun 6. september

Við byrjum starfið á morgun með kyrrðarstund kl. 12 síðan verður boðið upp á súpu og brauð á vægu verði. Við syngjum, spilum, spjöllum og prjónum.  Það verður gaman að hittast eftir sumarfrí og við munum eiga skemmtilega og ljúfa samverustund. Allir hjartanlega velkomnir

By |2017-02-02T13:01:57+00:005. september 2016 | 10:15|

Haustlitaferð eldri borgara á morgun þriðjudaginn 27. september

Haustlitaferð eldri borgarastarfsins verður farinn þriðjudaginn 27. sep. Lagt verður af stað kl. 13:00 frá kirkjunni og áætlað að vera komin til baka kl. 16.00. Ferðinni er heitið á Álftanesið þar sem við fáum leiðsögn um sögu staðarins frá Maríu Birnu Sveinsdóttur. Við skoðum kirkjunna á Bessastöðum og síðan bíður okkar glæsilegt kaffihlaðborð í Garðaholti. [...]

By |2017-02-02T13:01:59+00:0030. ágúst 2016 | 10:56|

Fjölskyldumessa sunnudaginn 4. september kl. 11:00

Sunnudagaskólinn fer aftur af stað sunnudaginn 4. september kl. 11.  Pétur og félagar mæta hressir og kátir og hlakka til að hitta alla eftir sumarfrí. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar. Heitt kaffi á k0nnunni eftir stundina og djús fyrir krakkana. 

By |2017-02-02T13:01:59+00:0030. ágúst 2016 | 09:59|

Kveðjuguðsþjónusta séra Svavars Stefánssonar sunnudaginn 28. ágúst kl.11

Kveðjuguðsþjónusta séra  Svavars Stefánssonar verður sunnudaginn 28. Ágúst kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir safnaðarsöng undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Núverandi og fyrrverandi starfsfólk kirkjunnar tekur þátt í guðsþjónustunni. Hildur Björk Svavarsdóttir og og Sævar Breki Einarsson leika á flautu og básunu. Eftir guðsþjónustu verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarsal kirkjunnar. Sr. Svavar, sóknarnefnd [...]

By |2017-02-02T13:01:59+00:0023. ágúst 2016 | 10:48|

Sr. Svavar lætur af störfum

Eftir tæplega 14. ára starf sem sóknarprestur Fellasóknar lætur sr. Svavar Stefánsson af störfum nú 1. september að eigin ósk. Síðasta guðsþjónusta hans í embætti verður þann 28. ágúst kl. 11. Eftir guðsþjónustuna verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarsal kirkjunnar og sóknarbörn kirkjunnar fá tækifæri til að eiga góða stund saman. Sr. Svavar [...]

By |2016-08-22T10:48:15+00:0018. ágúst 2016 | 10:59|

Tónleikaröðin Frjáls eins og Fuglinn hefst að nýju 14. september kl. 20.00

Miðvikudagskvöldið 14. september hefst tónleikaröðin "Frjáls eins og fuglinn" að nýju. Að þessu sinni fær Arnhildur organisti til sín Særúnu Harðardóttur sópran og þær munu flytja fjölbreytta og skemmtilega söngdagskrá. Miðaverð er að venju kr 2.500 og fyrir eldri borgara og öryrkja aðeins kr 1.500. Tónleikarnir hefjast kl 20 og boðið verður uppá kaffisopa í lokin.  

By |2016-08-17T11:41:29+00:0017. ágúst 2016 | 11:39|

Sumarmessa sunnudaginn 21. ágúst kl. 11

Sumarmessa kl. 11.00. Prestur Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og predikar. Kór kirkjunnar syngjur. Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir. Heitt á könnunni eftir stundina Verið hjartanlega velkomin. 

By |2017-02-02T13:01:59+00:0017. ágúst 2016 | 11:31|

Dagskrá vetrarins

Nú fer kirkjan að vakna úr sumardvalanum og dagskrá vetrarins að fæðast. Vetrastarfið hefst með fjölskyldumessu sunnudaginn 4. september kl. 11 Pétur og félagar mætta hressir og kátir og hlakka til að hitta sunnudagaskólabörnin eftir sumarfrí Heitt kaffi á könnunni eftir stundina og djús fyrir krakkana Eldri borgarastarfið hefst þriðjudaginn 6. september Foreldramorgnar hefjast fimmtudaginn [...]

By |2017-02-02T13:01:59+00:0013. ágúst 2016 | 12:20|
Go to Top