Fréttir

Gleði gleði gleði á æskulýðsdaginn.

Gleðin var við völd í æskulýðsguðsþjónustu Fella- og Hólakirkju 2. mars. Litrófið söng af sinni alkunnu snilld og hljómsveitin Sálmari (áður Tilviljun?) lék undir og stýrði almennum söng. Þá fluttu Sálmari tvö lög af efnisskrá sinni. Æskulýðsfélagið sýndi helgileik og minnti okkur á að sýna náungakærleik og umhyggju. Fermingarbörn lásu bænir. Prestur var séra Guðmundur [...]

By |2017-02-02T13:02:11+00:003. mars 2014 | 11:19|

Æskulýðsdagurinn 2. mars

Kæru vinir! Sunnudaginn 2. mars er æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar og þá verður að vanda mikið um að vera í kirkjunni okkar. Klukkan 11 er fjölskylduguðsþjónusta þar sem börn af krílasálmanámskeiði verða í aðalhlutverki. Umsjón hafa Guðný Einarsdóttir og Ragnhildur Ásgeirsdóttir. Prestur séra Guðmundur Karl Ágústsson. Kirkjuvörður Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Klukkan 20 er æskulýðsguðsþjónusta með helgileik og [...]

By |2017-02-02T13:02:11+00:0027. febrúar 2014 | 14:22|

Foreldramorgnar alla fimmtudaga kl. 10-12

Fimmtudaginn 27. febrúar kemur hjúkrunarfræðingur frá Heilsugæslunni Efra-Breiðholti í heimsókn. Foreldramorgnar eru samverur foreldra og barna og henta vel heimavinnandi foreldrum og foreldrum í fæðingarorlofi. Kristín og Jóhanna taka vel á móti öllum, alltaf heitt á könnunni.

By |2017-02-02T13:02:11+00:0026. febrúar 2014 | 18:18|

Sunnudagur 23. febrúar. Útvarpsguðsþjónusta og vöfflukaffi.

Biblíudagurinn verður haldinn hátíðlegur 23. febrúar. Þá verður útvarpað guðsþjónustu frá Fella- og Hólakirkju þar sem nýráðinn framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags, Ragnhildur Ásgeirsdóttir, prédikar. Séra Guðmundur Karl Ágústsson þjónar fyrir altari. Organisti er Guðný Einarsdóttir en kvennakórinn Vox Feminae syngur. Benedikta Waage og Ólöf Margrét Snorradóttir lesa ritningartexta dagsins. Meðhjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Sunnudagaskólinn er [...]

By |2017-02-02T13:02:11+00:0019. febrúar 2014 | 11:50|

Þriðjudagur 18. febrúar. Kyrrðarstund og kirkjustarf

Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð á vægu verði eftir stundina. Kirkjustarf aldraðra hefst kl. 13. Séra Guðmundur Karl Ágústsson fjallar um hjátrú og flökkusögur. Góður tími til að spila, spjalla og prjóna. Framhaldssagan, Bláu trén í Friðheimum er á sínum stað. Fyrirbænastund í lokin. Allir velkomnir. Umsjón: Ólöf Margrét Snorradóttir.

By |2014-02-17T22:57:57+00:0017. febrúar 2014 | 22:57|

Sunnudagur 16. febrúar

Messa kl. 11. Séra Guðmundur Karl Ágústsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kirkjukórinn syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Guðný Einarsdóttir. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Í guðspjalli dagsins heyrum við dæmisögu Jesú um verkamennina í víngarðinum, Matt 20.1-16. Sunnudagaskóli er á sama tíma í umsjá Hreins og Péturs. Verður gaman að fylgjast  með hverju þeir [...]

By |2014-02-13T13:12:31+00:0013. febrúar 2014 | 13:12|

Foreldramorgnar alla fimmtudaga kl. 10-12

Fimmtudaginn 13. febrúar verður Elena Teuffer með kynningu á versluninni Þumalínu og vörum frá þeim. Jóhanna og Kristín eru alltaf með heitt á könnunni og taka vel á móti foreldrum og börnum. Foreldramorgnar eru samverur foreldra og barna og henta vel heimavinnandi foreldrum eða foreldrum í fæðingarorlofi. Verið velkomin.

By |2014-02-12T13:05:41+00:0012. febrúar 2014 | 13:05|

Þriðjudagur 11. febrúar

Kyrrðarstund og kirkjustarf aldraðra Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, íhugun og bæn. Súpa og brauð á vægu verði eftir stundina. Kl. 13 hefst kirkjustarf aldraðra. Í dag förum við í léttan spurningaleik. Alltaf gefst tími fyrir spil, spjall og handavinnu. Framhaldssagan á sínum stað, Bláu trén í Friðheimum. Fyrirbænastund í lokin. Allir velkomnir. Umsjón: Ólöf Margrét [...]

By |2014-02-11T10:25:44+00:0011. febrúar 2014 | 10:25|

Útvarpsguðsþjónusta og Hollvinafélag Félag Fella- og Hólakirkju

Sunnudaginn 9. febrúar sl. var útvarpsguðsþjónusta frá Fella- og Hólakirkju. Séra Svavar prédikaði og þjónaði fyrir altari. Kirkjukórinn söng dásamlega að vanda og organistinn Guðný Einarsdóttir fór á kostum. Messuþjónar lásu ritningartexta og almenna kirkjubæn. Hægt er að hlusta á upptöku frá guðsþjónustunni hér: http://ruv.is/sarpurinn/gudsthjonusta-i-fella-og-holakirkju/09022014-0 Að guðsþjónustu lokinni var Hollvinafélag Fella- og Hólakirkju formlega stofnað. [...]

By |2014-02-10T11:52:00+00:0010. febrúar 2014 | 11:52|

Sunnudagurinn 9. febrúar

Guðsþjónusta sunnudaginn 9. febrúar kl. 11. Prestur Svavar Stefánsson, organisti Guðný Einarsdóttir sem einnig stjórnar kór kirkjunnar er leiðir safnaðarsöng. Messuþjónar aðstoða. Guðsþjónustunni verður útvarpað beint á RUV, rás 1. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hreins og Péturs. Stofnfundur Hollvinafélags Fella- og Hólakirkju í safnaðarsal kirkjunnar að lokinni guðsþjónustu. Athugið að allir sem vilja [...]

By |2014-02-06T09:21:55+00:006. febrúar 2014 | 09:21|
Go to Top