Sunnudagur 25.apríl – menningarhátíð barna
Verið velkomin til guðsþjónustu kl.11 sem jafnframt er lokahátíð barnastarfsins. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Bjarki Freyr Andrésson, 10 ára, leikur forspil á orgel. Organisti er Guðný Einarsdóttir. Listasmiðjan Litróf syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Dansarar úr Listdansskóla Íslands sýna dansatriði úr fallegu verki eftir Alvin Ailey. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. [...]