Fréttir

Gestir úr fjöllunum á jólaskemmtun sunnudagaskólans

Sunnudaginn 14.desember, á 3. sunnudegi í aðventu verður jólaskemmtun sunnudagaskólans haldin hér í kirkjunni kl. 11.00. Við byrjum með helgistund inni í kirkjunni, heyrum biblíusögu dagsins, tendrum ljósið á aðventukransinum og syngjum jólasálma. Síðan verður haldið inn í safnaðarheimilið þar sem við dönsum í kringum jólatré […]

By |2008-12-09T15:23:33+00:009. desember 2008 | 15:23|

Sælustund í skammdeginu

Fimmtudagskvöldið 11. desember kl 20 bjóðum við upp á létt tónlistarkvöld hér í kirkjunni. Föngulegur hópur tónlistarfólks, þau Hilmar Örn Agnarsson, Pétur Ben, Svavar Knútur, Myrra Rós, hljómsveitirnar Sprengjuhöllin og Árstíðirnar auk sönghóps úr Söngskólanum í Reykjavík flytja okkur jólatónlist. Boðið er upp á heitt súkkulaði og smákökur eftir stundina. Verið öll velkomin

By |2008-12-08T00:00:00+00:008. desember 2008 | 00:00|

Aðventukvöld 30.nóvember kl.20.00

Sunnudaginn 30.nóvember kl. 20.00 verður aðventukvöld hér í kirkjunni. Dagskráin verður fjölbreytt og hátíðleg. Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri Reykjavíkurborgar flytur hugleiðingu. Ásdís Arnalds, sópran syngur ásamt kór kirkjunnar. […]

By |2008-11-25T12:11:42+00:0025. nóvember 2008 | 12:11|

Fyrsti sunnudagur í aðventu

Sunnudagurinn 30.nóvember er fyrsti sunnudagur í aðventu og hefst þar með nýtt kirkjuár. Þann dag verður guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur er sr. Svavar Stefánsson. Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. […]

By |2008-11-25T11:35:11+00:0025. nóvember 2008 | 11:35|

Síðasti sunnudagur kirkjuársins

Sunnudaginn 23.nóvember, sem er síðasti sunnudagur kirkjuársins verður guðsþjónusta kl 11.00. Prestur er sr. Þórhildur Ólafs. Kór Fella-og Hólakirkju, undir stjórn Ásdísar Arnalds, leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Ásta Haralds. Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma. Við kíkjum í fjársjóðskistuna, heyrum biblíusögu dagsins, […]

By |2008-11-18T10:21:39+00:0018. nóvember 2008 | 10:21|

Litróf með söngleik

Listasmiðjan Litróf býður öllum til sýningar á söngleik Hauks Ágústssonar um Litlu Ljót föstudaginn 14. nóvember kl. 18 í Fella-og Hólakirkju.< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /> Aðgangur er ókeypis. […]

By |2008-11-06T10:13:04+00:006. nóvember 2008 | 10:13|

Sjálfsmyndir, söngur og töfrabrögð í fjölskylduguðsþjónustu

Sunnudaginn 9.nóvember, sem jafnframt er kristniboðsdagurinn, verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Prestar eru Sr. Svavar Stefánsson og sr. Þórhildur Ólafs. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Jón Víðis töframaður sýnir töfrabrögð. Listasmiðjan Litróf sýnir atriði. Yngstu börnin í Fellaskóla og Hólabrekkuskóla hafa verið í heimsókn hjá okkur í vikunni í tilefni af 20.ára vígsluafmæli kirkjunnar [...]

By |2008-11-04T13:55:47+00:004. nóvember 2008 | 13:55|
Go to Top