Fréttir

Sunnudagurinn 25. nóvember

Guðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónustunni verður útvarpað beint á Rás 1 hjá RUV. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Organisti og söngstjóri Guðný Einarsdóttir og mun kór kirkjunnar leiða sönginn. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Kirkjugestum boðið í súpu og brauð eftir guðsþjónustuna.

By |2007-11-21T08:16:25+00:0021. nóvember 2007 | 08:16|

Sunnudagurinn 18. nóvember

Fjölskylduguðsþjónusta kl.11. Möguleikhúsið sýnir leikritið ,, Höll ævintýranna”. Verið innilega velkomin. Skemmtun Vinabandsins kl. 16. Sjá nánar í áfram […]

By |2007-11-13T10:35:31+00:0013. nóvember 2007 | 10:35|

Sunnudagurinn 11. nóvember

Sunnudaginn 11. nóvember verður guðsþjónusta kl. 11 að venju. Prestur að þessu sinni er dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, hérðasprestur. Kór kirkjunnar leiðir söng undir stjórn söngstjórans, Gyðnýjar Einarsdóttur, sem leikur einnig á orgelið. Sunnudagaskóli á sama tíma.

By |2007-11-07T08:55:49+00:007. nóvember 2007 | 08:55|

Allra heilagramessa

Sunnudaginn 4.nóvember, sem er allra heilagra messa, verður guðsþjónusta kl. 11.00. Látinna verður minnst. Prestur er sr. Guðmundur Karl Ágústsson og Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni, prédikar og þjónar með honum. […]

By |2007-10-30T13:57:28+00:0030. október 2007 | 13:57|

Boðið upp á súpu eftir guðsþjónustu á sunnudaginn

Sunnudaginn 28.október, sem er 21.sunnudagur eftir þrenningarhátíð er guðsþjónusta kl.11.00. Sr. Svavar Stefánsson þjónar ásamt Ragnhildi Ásgeirsdóttur, djákna. Organisti er Guðný Einarsdóttir og kór Fella-og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli á sama tíma. […]

By |2007-10-24T11:27:31+00:0024. október 2007 | 11:27|

Ný biblíuþýðing afhent söfnuðinum

Sunnudaginn 21. október, sem er 20. sunnudagur eftir þrenningarhátíð, verður guðsþjónusta kl. 11.00. Í guðsþjónustunni verður ný þýðing Biblíunnar afhent söfnuðinum með viðhöfn. Prestur er sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti er Guðný Einarsdóttir, félagar úr Kór Fella- og Hólakirkju leiða almennan safnaðarsöng. Sunnudagaskóli fer fram á sama tíma […]

By |2007-10-18T16:12:40+00:0018. október 2007 | 16:12|
Go to Top