Fréttir

Fyrirbæn og djúpslökun á þriðjudögum kl. 17:30 – 18:30 Allir velkomnir

Á þriðjudögum er boðið upp á fyrirbæna og djúpslökunarstund í Fella-og Hólakirkju. Þú liggur undir teppi, lætur fara vel um þig og nýtur leiðsagnar sem leiðir inní djúpa kyrrð og hvíld, ef þig langar að slaka á, losa um spennu og streitu, efla sköpunarkraftinn og bæta svefninn þá eru þetta stundir fyrir þig. 

By |2018-02-20T20:56:04+00:0014. janúar 2018 | 18:22|

Kyrrðarstund og eldriborgarastarf þriðjudaginn 16. janúar

Kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar Kristjánsdóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð á vægu verði. Eldriborgarastarfið verður á sínum stað og við fáum góðn gest í heimsókn. Ágústa Dómhildur les Grýluljóð fyrir okkur, við syngjum saman, spilum, púslum og spjöllum. Eigum góða samveru saman. Allir eru [...]

By |2018-01-14T18:09:57+00:0014. janúar 2018 | 18:09|

Barna-og æskulýðstarfið hefst að nýju 14. janúar.

Barna-og æskulýðsstarf kirkjunnar hefst að nýju sunnudaginn 14. janúar með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11, en þá þjónar sr. Jón Ómar ásamt Pétri Ragnhildarsyni og Ástu G. Guðmundsdóttur. Að venju verður sunnudagaskóli kl. 11 alla sunnudaga í vetur og á fimmtudögum verður barna-og æskulýðsstarfið sem hér segir: Vinadeild fyrir 2.-4. bekk kl. 15:30 (hefst 18. janúar). Leikjafjör [...]

By |2018-01-05T12:14:31+00:005. janúar 2018 | 12:14|

Fjölbreytt safnaðarstarf í vetur

Það verður fjölbreytt safnaðarstarf í kirkjunni í vetur að venju fyrir alla aldurshópa. Á þriðjudögum verður opið hús fyrir eldri borgara og á fimmtudögum verður spennandi barnastarf - og æskulýðsstarf. Í febrúar og mars verða léttar fræðslusamverur um trúna, lífið og tilveruna. Vertu velkomin í kirkjuna þína, við hvetjum þig til að taka þátt í [...]

By |2018-01-22T11:48:13+00:005. janúar 2018 | 12:08|

Helgihald um jól og áramót

Það verður mikið um að vera í kirkjunni okkar um hátíðarnar, er við fögnum saman jólum og barninu sem fæddist til þess að vera okkur mönnunum frelsari og leiðarljós. Sóknarnefnd og starfsfólk Fella-og Hólakirkju óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Hér má sjá dagskrá hátíðanna í kirkjunni, vertu velkomin í kirkjuna þína! [...]

By |2017-12-22T12:26:51+00:0019. desember 2017 | 14:45|

Þriðji sunnudagur í aðventu 17. desember kl.11:00

Jólasöngvar við kertaljós. Jólahelgistund á aðventu, sungin verða ljúf og falleg jólalög. Notaleg stund í kirkjunni. Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju flytur fjölbreytta  dagskrá í anda jólanna. Einsöngvarar Auður Perla Svansdóttir og Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir. Frumflutt verður lag eftir Julian Hewlett og Ragnar Jónsson. Prestar og djákni kirkjunnar þjóna. Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Verið [...]

By |2017-12-12T10:09:00+00:0012. desember 2017 | 10:09|
Go to Top