Fréttir

Aðventustund sunnudaginn 7.desember kl. 11

Aðventustundinni sem frestað var 1. sunnudag í aðventu verður haldin næsta sunnudagur 7 desember kl. 11.  Fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa. Flutt verður falleg tónlist í anda aðventunnar. Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Fellaskóla flytur hugvekju.  Almennur söngur. Organisti Eyþór Franzson Wechner. Heitt súkkulaði og smákökur eftir stundina.

By |2016-03-21T21:08:11+00:002. desember 2014 | 11:17|

Jólaljósaferð miðvikudaginn 3. desember farið verður frá Breiðholtskirkju

Kæru vinir í Breiðholtskirkju, Fella- og Hólakirkju og Seljakirkju !   Miðvikudaginn 3. desember verður boðið upp á jólaljósaferð eldri borgara í kirkjunum. Mæting er kl. 15:30 við Breiðholtskirkju og lagt verður af stað kl. 16:00. Ekið verður um höfuðborgarsvæðið í um það bil klukkustund og jólaljósadýrðin skoðuð. Ferðinni lýkur svo í Breiðholtskirkju þar sem [...]

By |2016-03-21T21:08:11+00:001. desember 2014 | 10:40|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 2. desember

Eldri borgara starf þrðjudaginn 2. desember hefst eins og vant er kl. 12 með kyrrðarstund. Að þessu sinni fáum við góðan gest í heimsókn.Kristín Steinsdóttir rithöfundur kemur í heimsókn og les upp úr nýju bókinni sinni Vonarlandið. Vonarlandið er Reykjavíkursaga sem gerist á seinni hluta 19. aldar, saga nokkurra alþýðukvenna sem búa saman í litlu [...]

By |2016-03-21T21:08:11+00:001. desember 2014 | 10:24|

Aðventukvöld Fella-og Hólakirkju

 Aðventukvöld Fella- og Hólakirkju  Aðventukvöld Fella- og Hólakirkju 30. nóvember 2014 fyrsta sunnudag í aðventu kl. 20. Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Fellaskóla  flytur hugvekju. Mikil tónlist og hátíðlegt kvöld. Verið innilega velkomin í kirkjuna okkarJ

By |2017-02-02T13:02:07+00:0027. nóvember 2014 | 13:16|

Fyrsti sunnudagur í aðventu. Guðsþjónusta og aðventukvöld

Fyrsti sunnudagur í aðventu: Guðþjónusta kl. 11 og aðventukvöld kl. 20. Sunnudagur 30.nóvember Guðsþjónusta kl. 11 Prestur Svavar Stefánsson þjónar fyrir altari. Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar. Organisti er Eyþór Franzson Wechner. Aðventukvöld kl. 20. Fjölbreytt dagskrá á aðventukvöldi kirkjunnar, flutt verður falleg tónlist í anda aðventunnar. Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Fellaskóla flytur hugvekju. Almennur [...]

By |2017-02-02T13:02:07+00:0025. nóvember 2014 | 11:09|

Félagstarf eldri bogara þriðjudaginn 25. nóvember

Félagsstarf eldri borgara verður eins og vant er kl. 12:00 á þriðjudaginn og hefst með kyrrðarstund. Súpan og kaffið á sínum stað. Allir hjartanlega velkomnir. Að þessu sinni fáum við góðan gest í heimsókn. Steinunn Jóhannesdóttir kemur til okkar og les upp úr nýju bókinni sinni Jólin hans Hallgríms. Steinunn Jóhannesdóttir er flestum kunn en [...]

By |2017-02-02T13:02:07+00:0023. nóvember 2014 | 20:02|

Guðsþjónusta sunnudaginn 23. nóvember kl. 11

Séra Guðmundur Karl Ágústsson  þjónar fyrir altari. Sönghópurinn Boudoir syngur. Sr. Ragnar Gunnarsson framkvæmdarstjóri Sambands íslenskra kristniboðsfélaga  prédikar og kynnir kristinboð.  Meðhjálpari Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Sunnudagaskóli er á sama tíma í umsjá Hreins og Péturs. Saga, Söngur og gleði að vanda. Allir hjartanlega velkomnir!

By |2016-03-21T21:08:12+00:0018. nóvember 2014 | 10:11|

Barokk tónleikar á degi heilagrar Sesselju 22. nóvember kl. 20.

    Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk stendur fyrir tónleikum laugardaginn 22. nóvember kl. 20 í Fella- og Hólakirkju. Dagurinn er tileinkaður verndardýrlingi tónlistarinnar, heilagri Sesselju. Hópurinn sérhæfir sig í flutningi tónlistar frá barokktímanum á upprunaleg hljóðfæri og á tónleikunum munu hljóma verk eftir Corelli, Vivaldi, Telemann, Buxtehude en einnig nýtt verk eftir eina af meðlimum hópsins, Kristínu [...]

By |2017-02-02T13:02:08+00:0018. nóvember 2014 | 09:57|

Kirkjustarf eldri borgara alla þriðjudaga

Eldri borgarastarfið hefst kl. 12 með kyrrðarstund. Að þessu sinni fáum við góða heimsókn frá Bústaðarkirkju. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni kemur í heimsókn og ætlar að segja okkur frá eldir borgarastarfinu í Bústaðarkirkju. Hún ætlar einnig að kenna okkur nokkrar góðar leikfimis- og teyjuæfingar. Súpan, kaffið og gott meðlæti á sínum stað. Eigum góða samveru saman, spilum, spjöllum og [...]

By |2016-03-21T21:08:12+00:0016. nóvember 2014 | 15:37|
Go to Top