Fréttir

Sunnudagur 15. nóvember

Næstkomandi sunnudag er guðsþjónusta kl.11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Ragnhildur Ásgeirsdóttir, djákni prédikar. Kór Fella-og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur kantors. Sunnudagskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar D Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur. Þar verður farið í leiki, mikið fjör og gaman. Kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. Verið velkomin

By |2009-11-11T16:43:10+00:0011. nóvember 2009 | 16:43|

Krílamessan

Míkið fjölmenni var við messu á sunnudaginn var og meðalaldurinn lægri en venjulega. […]

By |2017-02-02T13:02:16+00:0010. nóvember 2009 | 20:19|

Skiptimarkaður

Á hverjum fimmtudagsmorgni milli 10 - 12 eru foreldramorgnar í kirkjunni. Næst, fimmtudaginn 12.nóvember, verður haldinn skiptimarkaður með barnafötum. Lesa meira

By |2009-11-10T08:23:42+00:0010. nóvember 2009 | 08:23|

„Krílamessa“

Næsta sunnudag er Krílamessa kl.11.Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Mikill söngur, skemmtileg dagskrá og vöfflukaffi. […]

By |2009-11-04T16:10:46+00:004. nóvember 2009 | 16:10|

Sunnudagur 1. nóvember Allraheilagramessa

Messa á Allraheilagramessu kl  11:00  Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Látinna minnst. Mikil tónlist, kór Fella-og Hólakirkju syngur, einsöngvarar eru Margrét Guðjónsdóttir og Ásdís Arnalds. Stjórnandi Guðný Einarsdóttir kantor.Meðhjálpari og kirkjuvörður er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóru Sigurðardóttur og Þóreyjar Daggar Jónsdóttur. Á dagskrá sunnudagskólans verður föndur. Verið innilega velkomin.

By |2009-10-29T10:21:18+00:0029. október 2009 | 10:21|

Sunnudagur, 25. október

Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur kantors kirkjunnar.Tveir útskriftanemar Ólafs Elíassonar í píanóleik koma fram í guðsþjónustunni. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Þóreyjar Daggar Jónsdóttur og Þóru Sigurðardóttur.,,Náttfatapartý". Mikill söngur og skemmtileg stund. Verið öll innilega velkomin í kirkjuna.

By |2009-10-20T16:06:03+00:0020. október 2009 | 16:06|

Sunnudagur 18. október 2009 kl 11:00

Guðsþjónusta  kl.11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttur kantors kirkjunnar. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir. Sunnudagskóli á sama tíma í umsjá Ragnhildar Ásgeirsdóttur og Heiðrúnar Guðvarðardóttur.,,Lærum að búa til nammi". Mikill söngur, líf og fjör. Verið innilega velkomin. wwwfellaogholakirkja.is

By |2009-10-15T08:44:59+00:0015. október 2009 | 08:44|

Sunnudagur 11. október

Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Svavar Stefánsson. Ester Viktorsdóttir, píanóleikari, leikur á hljóðfæri en kór kirkjunnar leiðir söng. Að beiðni biskups Íslands verður tekið við samskotum til styrktar innlendri aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Ragnhildar og Heiðrúnar. Efni dagsins er: Íþróttir og fjör!

By |2009-10-07T21:03:22+00:007. október 2009 | 21:03|

Sunnudagur 4. október kl. 11.

Fjölskylduguðsþjónusta kl 11 Sunnudaginn 4.október er fjölskylduguðsþjónusta kl 11. Við kíkjum í fjársjóðskistuna og heyrum biblíusögu dagsins, Listasmiðjan Litróf kemur fram undir stjórn Ragnhildar Ásgeirsdóttur, djákna.  Sr. Guðmundur Karl Ágústsson leiðir stundina ásamt starfsfólki sunnudagaskólans og Guðnýju Einarsdóttur organista. Eftir stundina er boðið upp á kaffi og djús Verið öll innilega velkomin

By |2009-09-23T12:02:04+00:0023. september 2009 | 12:02|

Guðsþjónusta sunnudaginn 20. september kl 11:00

Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl organisti Guðný Einarsdóttir. Kór kirkjunnar leiðir söng. Væntanleg fermingarbörn næsta vors og aðstandendur þeirra sérstaklega boðin velkomin. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjón Ragnhildar og Heiðrúnar. Á eftir messu verður fundur með foreldrum/forráðamönnum í kirkjunni. Þar verður farið yfir starfið í vetur.

By |2009-09-18T09:02:27+00:0018. september 2009 | 09:02|
Go to Top