Fréttir

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 12. desember

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 12. desember Kyrrðarstund kl.12:00. Jólasamvera eldri borgarastarfsins. Síðasta samvera fyrir jól og við gerum okkur glaðan dag. Borðum jólamat, syngjum jólalögin og lesin verður jólasaga. Verið velkomin

By |2017-12-10T13:23:36+00:0010. desember 2017 | 13:23|

Jólaball sunnudagaskólans

Á 2. sunnudegi aðventunnar, þann 10. desember,  verður jólaball sunnudagaskólans í kirkjunni kl. 11. Við syngjum saman, dönsum í kringum jólatréð og fáum óvænta heimsókn! Allir velkomnir.    

By |2017-12-05T10:20:49+00:005. desember 2017 | 10:02|

Aðventan í Fella-og Hólakirkju

Aðventan í Fella-og Hólakirkju „Kom þú, kom, vor Immanúel og leys úr ánauð Ísrael“   Sunnudagurinn 1. desember, 1. sunnudagur í aðventu Kirkjubrall kl. 11: Við syngjum, förum í ratleik, búum til jólakort, jólakúlur, pappaengla, skreytum piparkökur og heyrum jólasögu. Samverustund fyrir alla fjölskylduna. Aðventukvöld kl. 20: Kór kirkjunnar og einsöngvarar flytja fallega söngdagskrá  Jón Guðmundsson, [...]

By |2017-11-28T14:24:49+00:0028. nóvember 2017 | 14:22|

Fyrsti sunnudagur í aðventu Fella-og Hólakirkju, sunnudaginn 3. desember

Kirkjubrall kl. 11:00 Við ætlum við að huga saman að aðventu og jólum og bralla ýmislegt saman í kirkjunni. Við syngjum, förum í ratleik, búum til jólakort, jólakúlur, pappaengla, skreytum piparkökur og heyrum jólasögu. Samverustund fyrir alla fjölskylduna. Aðventukvöld kl. 20:00.  Kór kirkjunnar og einsöngvarar flytja fallega söngdagskrá  Jón Guðmundsson, flautuleikari og  Arnhildur Valgarðsdóttir, organisti, [...]

By |2017-11-28T10:39:44+00:0028. nóvember 2017 | 10:39|

Eldri borgarastarf þriðjudaginn 28.nóvember

Við byrjum með kyrrðarstund kl. 12:00 í umsjá Kristínar djákna og Arnhildar organista. Gestur okkar er Ármann Reynisson rithöfundur. Ármann var að gefa út nýja bók sem hann les upp úr fyrir okkur. Við eigum gott samfélag saman, spilum, föndrum og spjöllum. Verið velkomin

By |2017-11-26T21:08:51+00:0026. nóvember 2017 | 21:08|

Aðventukvöld 3. desember kl. 20:00

Aðventukvöld Fella- og Hólakirkju  Fyrsta sunnudag í aðventu kl. 20. „Kom þú, kom, vor Immanúel og leys úr ánauð Ísrael“ Ljúf og góð kvöldstund fyrir alla fjölskylduna í byrjun aðventu. Vegleg söngdagskrá með kór kirkjunnar, sem syngur undir stjórn Arnhildar Valgarðsdóttir. Nokkrir félagar úr kirkjukórnum syngja einsöng og Jón Guðmundsson spilar á flautu. Boðið er [...]

By |2017-12-05T10:15:07+00:0025. nóvember 2017 | 08:50|
Go to Top